Það er búið að vera mikið fjör á heimilinu síðustu vikuna. Við erum að fóstra 3 litla kettlinga og mömmu þeirra. Kettlingarnir eru ca 4–5 vikna og bjuggu í Laugardalnum.
Það hefur gengið mjög vel með þá og eru þeir ótrúlegt krútt. Erum búin að nefna þau Mandla, Karl litli og Krummi. Batman okkar er svo farinn að taka að sér pabbahlutverkið og passar upp á krílin
Verst verður að gefa þá frá sér en vonandi fá þeir allir þrír gott heimili, þeir eiga það svo sannarlega skilið.
Strákarnir mínir eru búnir að vera duglegir að sjá um sig sjálfir í eldhúsinu, undir handleiðslu mömmunnar að sjálfsögðu. Kvöldmatur, hádegismatur og bakstursprófun hjá þeim. Þeim finnst mjög skemmtilegt að fá að prófa sig áfram í eldhúsinu og kunna að gera hlutina, hvort sem það er að steikja hamborgara eða búa sér til boost. Á meðan situr mamman við eldhúsið og leiðbeinir þeim ef þess þarf. Yfirleitt þessa dagana er ég með litabókina mína mér við hlið og lita. Það er eitthvað við það að lita sem róar mig niður.
Í dag langaði strákana að baka smákökur. Alexander vildi gera súkkulaðikökur en Sigurgeir langaði í sítrónukökur og bjó því til þessa uppskrift. Heppnaðist mjög vel hjá honum. Þetta eru nokkuð þurrar kökur sem eru gómsætar með kaffi eða kaldri mjólk
Hnetu- og sítrónukökur Sigurgeirs
3 dl möndlumjöl
2 msk hnetumjöl frá Funksjonell
1 egg
3 msk. Sukrin Gold
2 msk. rjómi eða kókosmjólk
börkur af 1 sítrónu
4 dropar sítrónu stevía (má sleppa)
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
saxaðar salthnetur (má sleppa)