Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Látum okkur líða vel

$
0
0

Guðmundur Ingi Þorvaldsson skrifaði þessa hugleiðingu á Facebook og gaf okkur leyfi til að birta hana hér:

Stundum finnst fólki ekkert hafa gerst á lífsleið þess – að það hafi verið mun merkilegra að vera uppi á öðrum tímum. Það finnst mér ekki.

Fyrir utan fall austurblokkarinnar, internetið og aðrar stórmerkilegar breytingar á heimsmyndinni þá var mér hugsað til nærtækara dæmis um daginn.

Þegar ég var að alast upp í Reykholti var enginn samkynhneigður að því ég vissi, ekki heldur þegar ég var í Menntaskólanum á Akureyri. Í dag hefur þó nokkuð af mínu samferðafólki og vinum stigið fram og gengist við sjálfu sér.

Ég minnist þess heldur ekki að hafa heyrt minnst á kynferðisofbeldi gegn börnum þegar ég var barn. Það var nokkuð um að fólk af báðum kynjum í kringum mig hegðaði sér undarlega, drykki illa og svæfi mikið hjá löngu áður en það hafði þroska til.

Í dag veit ég að margt af því fólki glímdi við skakka sjálfsmynd vegna ofbeldis.

Þegar pabbi ákvað að fara í meðferð fyrir rúmum 20 árum var hann fyrsti maðurinn í dalnum til að gefast upp og fara á Vog. Því fylgdi nokkur hneykslan og skömm. Síðan hafa margir fylgt í kjölfarið.

Nú stígur hver fram á fætur öðrum og ræðir opinberlega um ofbeldi, fíkn og hvað annað sem í gegnum tíðina hefur skilið eftir sig skömm, ótta og sektarkennd hjá þeim sem síst skildi og nú síðast eru konur að stíga fram og vera stoltar að því að vera með brjóst og neita að fela þau fyrir okkur mönnunum sem gætu hugsanlega upplifað girnd, nokkuð sem við ættum að bera fulla ábyrgð á sjálfir.

Fyrir mér er þetta lykillinn að því að þessi tilvera geti færst á næsta stig. Skömm, ótti og sektarkennd eru neikvæðar tilfinningar sem hafa haldið þessu þjóðfélagi í vistarböndum í 1000 ár.

Lykillinn að bjartri framtíð er að öllum líði vel í eigin skinni og þurfi ekki að skammast sín. David Lynch var ekkert að grínast þegar hann sagði eftir hrun að þessi þjóð þyrfti að hugleiða og styrkti Íhugunarfélagið um umtalsverða fjármuni til að það gæti boðið Íslendingum upp á hugleiðslu á viðráðanlegu verði.

Látum okkur líða vel. Tölum saman. Verum jákvæð. Leikum okkur og verum ástfangin af lífinu. Verum leitandi og uppljómuð. Sumarið er tíminn til að láta sér líða vel.

Ást og friður.

Ljósmynd af GIÞ er eftir Gassa.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283