Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Til minningar um fórnarlömb árása á Gaza

$
0
0

Fréttatilkynning.

Í gærmorgun stóðu BDS Ísland – Sniðganga fyrir Palestínu og Félagið Ísland Palestína fyrir því að borði var strengdur yfir Miklubrautinni og Kringlumýrabraut. Á þessum borðum sem félögin settu upp stóð talan 2.251 til að minnast þeirra Palestínumanna sem drepnir voru á Gaza í árásum Ísraela fyrir árið síðan, en einnig talan 551 til að minnast þeirra barna sem drepin voru.

banner_drop-1

Í gær, þann 8. júlí var ár liðið frá því að Ísrael hófu árásir sínar á Gaza að þessu sinni. Þessar aðgerðir Ísraelsmanna stóðu yfir í 51 dag og urðu til þess að 2.251 voru drepin, þar af um 1.462 óbreyttir borgarar og 551 barn. Þessar tölur (úr skýrslu Sameinuðu Þjóðanna) sýna að 65% þeirra sem voru myrtir af ísraelska hernum voru saklausir borgarar Palestínu. Í árásunum slösuðust 11.231 einstaklingar og margir þeirra glíma nú við varanlega líkamlega fötlun.

Nú þegar liðið er ár síðan að árásirnar hófust hefur uppbyggingin verið takmörkuð. Ísrael skilgreinir byggingarefni ásamt fjölmörgum varahlutum, tölvuhlutum og farartækjum, sem hluti sem gætu haft fleiri en einn tilgang. Þar af leiðandi hafa þeir bannað innflutning á þeim vörum inn á Gaza. Minna en 1% af þeim varningi sem nauðsynlegur er til að endurbyggja Gaza og til að takast á við eðlilega fólksfjölgun, hefur skilað sér til Palestínumanna sem veldur því að stór hluti Gaza eru ennþá rústir einar. Enn þann dag í dag hefur ekki eitt einasta heimili á Gaza verið endurreist og tveir þriðju íbúanna lifa af matargjöfum alþjóðlegra hjálparstofnana

1.8 milljón Palestínumanna eru lokaðir inni í því ghettói sem Gaza svæðið er og er þeim bannað að fara frjálst ferða sinna. Gríðarlegar hömlur eru á leyfum til að ferðast út fyrir Gaza sem veldur því að langstærsti hluti íbúa Gaza er algjörlega fastur á svæðinu. Þessi ghettóvæðing Gaza hefur dregið verulega úr lífsgæðum á svæðinu en að meðaltali er atvinnuleysið 43% á svæðinu, sem er það mesta í heiminum. Áhrif gheottóvæðingar Gaza hefur valdið því að efnahagurinn er í rúst, fæðuöryggi er ótryggt og erfitt hefur verið að koma hjálpargögnum í gegnum múrana sem eru til staðar.

Ísrael, sem er hernámsaðillinn, verður að stöðva þessa endalausu herkví sem þeir hafa sett á Gaza. Núverandi herkví brýtur alvarlega gegn mannréttindum Palestínumanna og er brot á 33. grein fjórða Genfarsáttmálans sem bannar hóprefsingar (e. collective punishment).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283