Ótrúlegt en satt þá eru þessir molar hollir og syndsamlega góðir. Þeir eru meira að segja leyfilegir með morgunkaffinu! Ég geri þá í litlu eldföstu móti sem ég klæði með smjörpappír svo þetta getur hæglega verið ísterta líka. Ég hins vegar á þetta alltaf inni í frysti og sker niður nokkra mola með kaffinu þegar góða gesti ber að garði eða sykurþörfin nagar mig. Ef þú notar venjulegt hringlaga mót passar uppskriftin í 23 cm smellumót.
Botninn
5 dl hnetur t.d. valhnetur eða pekanhnetur
2 1/2 dl kókosmjöl
1 1/2 dl apríkósur
1 1/2 dl döðlur
1 msk. ósætt kakó
½ tsk. salt
½ tsk. vanilla
Öllu skellt í matvinnsluvél og maukað uns loðir vel saman. Deiginu er því næst þjappað ofan í mót og fryst á meðan fyllingin er útbúin. Ath. ef þú ert ekki með smelluform skaltu nota smjörpappír og klæða mótið að innan.
Fyllingin
4 dl kasjúhnetur. Lagt í bleyti í 3 klst eða meira. Ath. það verður meira úr hnetunum.
1 dl agave síróp eða hunang
2 vel þroskaðir bananar
1 dl kókosolía – fljótandi
1 tsk. góð vanilla
½ tsk. sjávarsalt
¼ tsk.kanill
½ dl möndlu- eða kókosmjólk
Ósætt kakó
Þú getur bragðbætt enn frekar með bragðbættri stevíu t.d. með karamellu en varast skal að gera fyllinguna of sæta. Mér finnst líka klikkað að setja nokkra piparmintudropa!
Kasjúhneturnar, kókosolían og agave/hunangið er sett í matvinnsluvél og maukað uns silkimjúkt. Allt annað bætist þá við að undanskildu kakóinu og blandað vel saman. Því næst er helmingnum af blöndunni hellt ofan á botninni. Sett í frysti í 1 klst.
Hinn helmingurinn er enn slakur í matvinnsluvélinni en er nú sameinaður með 2–4 msk. af kakói eftir smekk. Loks er restinni af fyllingunni hellt yfir kökuna og aftur inn í frysti í lágmark klst. áður en borið er fram. Gott er að skreyta kökuna með ristuðum kókos. Njótið!