Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

MINNINGABLÓM

$
0
0

MINNINGABLÓM

Um fjörusand ég arka núna einn
en áður fyrr við saman hérna gengum,
við augum okkar blasti vegur beinn
því bjartsýninnar þá við notið fengum.

Ég man hve hrein og saklaus sál þín var
er sjórinn lék í tæru geislaflóði,
í heimsins dýrð við yndi áttum þar
og allt sem varð að minninganna sjóði.

Og sálirnar fékk dagsins dirfska teymt
er draumaskipin náðu öll til hafnar.
Í minningum sem enginn getur gleymt
nú grær það blóm sem ávallt vex og dafnar.

Við sjóinn leika börnin hjartahrein,
og hjá þeim standa lúin gamalmenni.
Þú veist að sál þín ferðast aldrei ein
því öllum stundum verður fylgst með henni.

 

Ljósmynd af Flickr eftir Vincepal

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283