Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hættið að gefa barninu (mínu) sykur!

$
0
0

Ég kom við í matvöruverslun á föstudaginn um kvöldmatarleytið á leið minni úr bænum. Það var mikið að gera í versluninni. Af rælni leit ég ofan í körfurnar í kringum mig. Ég átti erfitt með að stara ekki. Nánast hver einasta karfa hafði að geyma stóran kexpakka, sykrað jógúrt með súkkulaðikúlum, morgunkorn með sykurpúðum og sykraða ávaxtadrykki. Þessi upptalning er fyrir utan sælgætið í körfunum.

Bílstjórar sykurkerranna voru flestir með börn með sér sem brostu kát með kerruinnhaldið algjörlega ómeðvituðum um að þetta mataræði mun fylgja þeim inn í framtíðina. Sjö ára sykurfíkill er ekki að fara að skila kexpakka og biðja um appelsínu upp á sitt einsdæmi. Foreldrarnir margir hverjir myndu aldrei borða þessa sykurdrullu sjálf og líklega einhverjir þeirra á leið í sykurbindindi númer 27.

 Myndir þú borða þetta?

Myndir þú borða þetta?

En hvað eigum við sem foreldrar að gera? Dóttir mín er eins árs og ég finn strax fyrir pressu að gefa barninu sykraðar vörur. Ég er stanslaust að afþakka íspinna, sykrað morgunkorn og annað sem dóttir mín hefur ekkert við að gera. Hún er ekki að biðja um slíkt og er alsæl með rúsínur eða eplabita. Af hverju ætti ég þá að vera að gefa henni súkkulaðikex? Undarlegt finnst mér þegar fólk réttir henni einhverja sykurdrullu án þess að spyrja okkur foreldrana áður. Ég tek það hiklaust af henni en það vill enginn vera „þessi“ mamma. Þetta er oft og tíðum viðkvæmt mál.

Ég vil ekki að fólk haldi að það mataræði sem það velur barninu sínu sé ekki nógu gott fyrir mitt barn. Þetta snýst ekki um það enda er hún of lítil til að skilja að boð og bönn fylgja sælgæti. Sumt má um helgar en ekki annars. Því er það einfaldlega ekki í boði. Þótt það þýði að ég verði að láta súkkulaðikexið sem vinalega konan rétti henni hverfa. Það er ekki alltaf auðvelt eða skemmtilegt að framfylgja hollustustefnunni en tilgangurinn helgar meðalið.

Góð vinkona mín sagði við mig þegar Regína var nýfædd og ég var að mana mig upp í að banna fólki að koma með leikskólabörn í heimsókn samkvæmt læknisráði á meðan RS-vírusinn geisaði: „Tobba. Þú verður að velja fyrir hana því hún getur það ekki sjálf. Í því felst að segja og gera óþægilega hluti.“

Myndir þú borða þetta?

En þetta?

Það mataræði sem hún elst upp við verður vonandi það mataræði sem hún mun tileinka sér og hefur smekk fyrir. Ég er sjálf alin upp við mikið grænmeti og ávexti. Gos og sælgæti  fengum við aðeins á laugardögum eða við sérstök tilefni. Ég bý enn að þessu mataruppeldi og þakka fyrir að mér finnst hollur matur virkilega góður þó ég hafi vissulega háð mitt stríð við sykurpúkann og átt í vandræðum með vigtina. Ég er 30 ára og hef aldrei keypt mér kók og drekk ekki annað gos en sódavatn.

Nú þegar ég er orðin móðir hef ég velt töluvert fyrir mér hvernig best sé að feta millveg þess að kenna barninu mínu að kunna að meta hollan og góðan mat – og þess að vera ekki „hundleiðinleg tómattrunta“.

Gott dæmi um þetta er þegar við héldum upp á 1 árs afmæli dóttur okkar í júlí. Ég bakaði hinar hefðbundnu sykurbombur en gætti þess að bjóða líka upp á litlar samlokur í skemmtilegum formum, spínateggjaböku, sykurlausa ístertu og litríkt ávaxtasalat. Afmælistertan var skærbleik sykurlaus jarðarberjaterta. Ég gerði líklega mestu mistökin í að tilkynna að hún væri sykurlaus. Ég hugsaði með mér að einhverjir foreldrar vildu líklega ekki gefa börnunum sínum sykur og vildu þá vita hvað annað væri í boði.

„Hver vill svona sykurlausa jarðarberja-afmælisköku?“ spurði ég skælbrosandi með kökuhnífinn á lofti.

Ég skimaði yfir borðið sem var fullt af fögrum litlum stubbum sem allir horfðu stóreygðir á súkkulaðitertuna við borðið. Skiljanlega. Þau vita að þær klikka yfirleitt ekki.

„Hún er rosalega góð,“ bætti ég vongóð við og skar sneið handa Regínu minni. „Þetta er sko uppáhaldskakan hennar Regínu.“ Reyndar sú eina sem hún hefur smakkað en af kjammshljóðunum að dæma og garginu þegar kakan kláraðist var ég vongóð um að hún myndi hitta í mark.

Ég stóð vandræðaleg með kökuhnífinn á lofti þar til ein meðvirk vinkona mín kallaði: „Við tökum eina,“ og rétti mér disk dóttur sinnar sem var ekki par sátt við móður sína. Afmælið gekk þó vel og allar sykurbomburnar hurfu á mettíma en samlokurnar og ávaxtasalatið líka sem gladdi mitt afsykraða hjarta.

Afmæliskakan misskilda

Afmæliskakan misskilda.

Ekki misskilja mig. Ég elska súkkulaði og alls konar óhollustu en finnst þó mikilvægt að stilla slíku í hóf og þá frekar fá mér eitthvað virkilega gott og gourmet þegar ég læt til skara skríða. Regínu tími er ekki kominn hvað sykur varðar og súkkulaði er ekkert að fara að hætta í framleiðslu. Hún á að læra að borða allan mat – smám saman.

Við fullorðna fólkið ættum kannski að læra að borða upp á nýtt líka? Myndum við borða sykurpúðamorgunkorn í morgunmat eða sykrað jógúrt með súkkulaðikúlum? Best er líklega að banna sem fæst en setja góðan ramma utan um matarvenju barna. Allavega er það planið okkar Kalla. Svo hættið að rétta smábörnum sykurpúða og súkkulaði!

Annars er ég bara hress og mæli með þessari afmælisköku sem krakkarnir fúlsuðu við. Ég hef boðið upp á hana síðan án þess að taka fram sykurleysi hennar – og þá hvarf hún ansi hratt af disknum.

Jarðarberjabomba:

Þessi kaka er mjög fersk, holl og næringarrík. Kökuna má setja í stórt sílíkonmót eða sílíkon muffinsmót og eiga í frystinum.

Kökuna má líka gera í muffinstærð

Kökuna má líka gera í muffinstærð

Botn:

5 dl hnetur. T.d. valhnetur eða pekanhnetur.

2 1/2 dl kókosmjöl

3 dl döðlur

1 dl kakóduft

2 msk. vatn

Setjið allt í matvinnsluvél og maukið þar til loðir vel saman. Þrýstið deiginu niður í 23 cm smellu eða sílíkonform, setjið inn í frysti og látið stífna smástund áður en fyllingin er sett á botninn.

Fylling:

4 dl kasjúhnetur lagðar í bleyti í lágmark 4 klst. (Vatninu svo hellt af.)

1,5 dl agave-síróp eða hunang

1 dl kókosolía (fljótandi)

1 stór vel þroskaður banani

400 g frosin jarðarber

2 tsk. góð vanilla – duft eða dropar

Salt á hnífsoddi

Ef þér finnst fyllingin ekki nægilega sæt má bæta nokkrum stevíudropum við. T.d. með vanillu eða hindberjabragði.

Setjið hneturnar og agav-sírópið ásamt kókosolíunni í matvinnsluvél og maukið uns silkimjúkt. Bætið þá öllu öðru við og maukið vel. Hellið yfir botninn og geymið í frysti þar til 2 klst. áður en bera á dýrðina fram. Skreytið með ferskum berjum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283