Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekki mikilvægt? / Afstaða heigulsins

$
0
0

Eitthvert málefni poppar upp í „umræðunni“. Því er velt fram og til baka, fólk á samskipti góð og slæm og skoðar þær hliðar sem koma fram. Svo kemur einhver „Hey, gerum eitthvað í þessu!“ og hinir fylgja með „Já, gerum það! Hérna er hvernig við gætum mögulega…“ og af stað rúllar boltinn þangað til, og það er gulltryggt, einhver hrópar „Stans! Það sem þið eruð að gera er EKKI MIKILVÆGT.“

Það skiptir ekki máli hvort rætt er um málefni LGBT, aðgengi að áfengi, lyfjastríðið eða aðskilnað ríkis og trúarbragða, fjölmiðla eða hjólreiðar eða hvaða svo sem málefni sem er, nöldurseggurinn mun á endanum birtast og lista hluti sem hann telur mikilvægari.

Heilbrigðiskerfið!

Atvinnuleysi!

Öryrkjar!

Börnin! Hver er að hugsa um börnin?!

Ég ætla ekki að segja að nöldurseggjunum sé sama um þessa mikilvægu hluti, en mikilvægi þeirra er bara ekki ástæðan fyrir því að þeir tjá sig. Ástæðan er heldur ekki sú að þeim finnist ómerkilegu málefnin í alvörunni ómerkileg. Í mörgum tilvikum haldast málefnin í hendur, eins og t.d. lyfjastríðið og heilbrigðiskerfið. Ástæðan held ég að sé frekar gunguskapur.

Þetta ætti að vera einfalt. Þótt einhverjir verji tíma sínum og orku í verk sem þér er sama um, þýðir ekki að þú verðir að kasta öllu til jarðar og bíða. X situr ekki endilega á hakanum þó Y sé leyst. Ef Framsókn vill hjálpa skuldurum þýðir það ekki að þeir muni sleppa því að hjálpa leigjendum eða öryrkjum. Það er bara tilviljun. Þótt ég sé með pitsu í bakaraofninum geturðu alveg sett núðlur í örbylgjuna.

Ég er ekki grænmetisæta, svo væri ekki fáránlegt að sjá mig mótmæla vegan-veitingastað með „Fussumsvei, en hvað um verðtrygginguna, ha?! Hvar er skjaldborgin?!“? Ég hef hvorki vit á veganisma né veitingastöðum, og vegan-veitingastaður stendur ekki í vegi fyrir mínum markmiðum.

Fólk var fyrir nokkru hundóánægt með tillögu Pírata um að afnema guðlastslögin. Það nefndi húsnæðis-, skulda-, heilbrigðis-, atvinnuleysis-, verðtryggingar-, trygginga-,  kvóta-,  tekju- og bankavandann sem dæmi um af hverju afnám laganna væri tímasóun. En það fattaði ekki að búið var að tala um alla þá vanda í meira en sjö heil helvítis ár. Og nú þegar búið er að afnema lögin eru hinir vandarnir enn óleystir. Næstum eins og guðlast hafi ekkert haft að gera með húsnæði eða sjávarútveg.

Viltu virkilega, virkilega, í alvörunni, rosa mikið leysa vandamál heilbrigðiskerfisins áður en ríkið er aðskilið Þjóðkirkjunni? Fínt, en komdu þá með 100% áætlun sem við getum framkvæmt á stundinni og þurfum ekkert að rífast um. Þú ert ekki með þá lausn? Þegiðu þá. Við erum með lausn á málefninu sem við vorum að tala um rétt áður þú opnaðir munninn.

Í staðinn fyrir að tefja eitthvað sem við vitum að við getum leyst, hví ekki að leysa það og búa þannig til rými fyrir aðrar lausnir?

Ef þér er alvara með að við getum ekki frelsað geirvörtuna því það er fátækt í Afríku þá sýndu ástríðuna í verki og farðu að vinna með Rauða krossinum. Og ef þér er virkilega alvara með retóríkinni þá ekki þrífa þig, skemmta eða hvílast fyrr en vandamálið er leyst. Farðu niður í miðbæ og mótmæltu öllum vegaframkvæmdum því það er enn flest allt ómalbikað í Namibíu. Innleiddu þetta viðhorf í líf þitt og meinaðu fólki inngöngu í þvottahúsið með útskýringunni „Norður-Kórea er fangelsi heillar þjóðar!“ Þvottur á Íslandi er tímasóun og eigingirni meðan Kim-Jong stjórnin er enn við lýði.

En fólkið sem tautar „Er þetta nú mikilvægt?“ er ekki að fara að gera það. Það er ekki að fara að gera neitt nema nöldra og halda aftur af hinum. Því þessi undarlega „forgangsröðunarafstaða“ (vissuð þið að íslenskan er uppáhalds tungumálið mitt?) er heigulsháttur og ekkert annað. Þetta er ekki stuðningur við málefnin sem viðkomandi telur mikilvæg heldur andstaða við önnur. „Þetta er röng forgangsröðun“ er tilraun þeirra sem þora ekki að tjá andstöðu sína til að bægja burt málefni.

Ef þér væri í alvöru sama um málefnið létirðu það í friði. Ef þú ert á móti því þá tjáðu þig og taktu þátt í gagnlegri umræðu. Ekki halda aftur af okkur hinum með leiðinlegum klisjum. Það gera skræfur.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283