Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Forsætisráðherra Finnlands býður heimili sitt fyrir flóttafólk

$
0
0

Forsætisráðherra Finnlands Juha Sipila hefur boðið heimili sitt fyrir flóttamenn. Hann sagði finnsku sjónvarpsstöðinni YLE í morgun að þeir geti flutt inn 1. janúar 2016.

„Við ættum öll að líta í spegil og spyrja okkur hvernig við getum hjálpað“ sagði forsætisráðherrann jafnframt en hann hefur hvatt Finna til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma flóttafólki til aðstoðar.

Forsætisráðherrann á hús sem hann notar ekki eftir að hann og fjölskylda hans fluttu til Helsinki. Ekki fylgdi sögunni hvernig flóttamenn ættu að sækja um að búa húsi forsætisráðherrans eða hversu mörgum húsið gæti nýst. Sipila er leiðtogi Miðflokksins sem hefur leitt miðju-hægri stjórn í Finnlandi síðan í maí.

Nú er spurning hversu langt þess er að bíða að forsætisráðherra vor bjóði lögheimili sitt til afnota fyrir flóttafólk.

Fréttastofan AP greindi frá. Ljósmynd AFP: Thierry Charlier


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283