Þetta er ein af mínum uppáhalds ísuppskriftum. Hún getur bara ekki klikkað.
1 egg
50 g Sukrin:1
70 g hnetusmjör
380 ml rjómi
5 dropar Caramel Toffee stevía
Þeytið saman eggi og sukrin:1. Bætið við hnetusmjöri og stevíu og í lokin óþeyttum rjóma. Þegar allt er vel blandað setjið þið í ísvél og farið eftir fyrirmælum á henni.
Ef þú átt ekki ísvél er hægt að þeyta rjómann og blanda svo öllu saman við og setja í box og í frystinn. Gott væri þá að hræra aðeins í ísnum á 30 mínútna fresti.