Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Við erum fólk, vinnum eins og fólk og verum eins og fólk

$
0
0

Ræða Óttarrs Proppé á Alþingi þann 8. september 2015

Virðulegi forseti, ástkæra alþingi, góðir áheyrendur.

Þá er komið að því. Kjörtímabilið er hálfnað. Það er full ástæða til þess að spyrja okkur hvort við höfum gengið til góðs. Í upphafi 142. Þings strax eftir kosningarnar 2013 hélt ég því að fram komandi þingstörf gætu orðið þau bestu í sögunni. Ég er hræddur um að það sé langt í þá einkunnargjöf eftir þau tvö ár sem liðin eru. En næstu tvo ár eru ennþá óskrifað blað og við eigum möguleika á að breyta í rétta átt.

Það er stundum sagt að það sé eins og stjórnmál séu orðin keppni í að hafa rétt fyrir sér. Þetta er yfirleitt ekki sagt í aðdáunartón. Hverjum þykir sinn fugl fagur, eðlilega. Það er freistandi að nýta hvern möguleika til þess að koma sínum vilja fram, jafnvel að þröngva honum upp á þá sem eru annarar skoðunar í krafti valds eða meirihluta.

Það er hættulegur ósiður. því þegar hlutverkin skiptast á er hætt við að nýi meirihlutinn sem fannst á sér troðið áður, beiti nýfengnu valdi til þess að snúa hlutunum við og þröngva sínum áherslum að. Þessi aðferðafræði er öngstræti sem leiðir til stöðnunar því ekki hverfa andstæðingar kvótakerfisins, né aðdáendur þess, þó annar hópurinn nái vilja sínum fram að fullu. Um slíkt næst aldrei sátt. Eina leiðin til sáttar til langs tíma er samtal og samvinna allra sem koma að borðinu. Bæði stjórnmálamanna og annara.

Á síðustu þingum höfum við upplifað bæði gott og slæmt. Við höfum séð mál sem hafa verið unnin á breiðum grunni, með samráði og aðkomu. Slík mál hafa verið farsæl í þinginu og um þau hefur ríkt góð sátt. Gott dæmi er fyrstu skrefin í afnámi hafta sem voru samþykkt í sumar.

En við höfum líka sóað miklum tíma og óendanlegum kröftum í mál sem hafa komið inn án samráðs, mál sem hefur verið kastað eins og sprengjum og hafa sett allt í loft upp. Dæmi um það eru aðildarviðræðurnar við ESB og tillage um virkjanir framhjá rammaáætlun. Það myndaðist engin sátt um þessi mál, hvorki inni á þingi né í þjóðfélaginu, Það var ekki gerð tilraun til þess að ná um þau sátt og það var aldrei möguleiki á neinni sátt. Sátt og traust er ekki eitthvað sem hægt er að panta eða heimta

Björt Framtíð er nýtt stjórnmálaafl. Við erum í stjórnmálum til þess að gera gagn og standa fyrir umbótum. Umhverfi og mannréttindi eru okkur hugleikin og við kjósum að bregða þeim gleraugum á flest mál. En við erum ekki síst stofnuð um betri vinnubrögð, um langtímahugsun, um það að gera plan. Plan sem endist og getur orðið að veruleika, plan sem er eitthvað annað en orðin tóm eða hugarleikfimi. Alvöru plan getur aldrei orðið nema um það náist breið samstaða. Til þess þarf samtal og samvinnu.

Við höfum nálgast störf þingsins með þessu hugarfari. Við höfum staðið með góðum málum hvaðan sem þau koma, og við höfum staðið hart gegn vondum málum. Við höfum ekki í hyggju að gera breytingu þar á. Við erum stolt af okkar vinnu. En umfram allt höfum við boðið upp á, og kallað eftir langtímahugsun, samtali og samvinnu á þingi. Við viljum taka þátt í að breyta og bæta hér vinnubrögð. Við erum til, hvenær sem er, brettum upp ermar hvenær sem tækifæri til þess gefst.

Hér á þingi hugsa ég af einhverjum ástæðum oft um indversku sjálfstæðishetjuna Mahatma Gandhi. Í sinni baráttu ferðaðist Gandhi um Indland þvert og endilangt, talaði við fólk og hlustaði. Hann var meinlætamaður en algjör vinnuhestur og ferðaðist með stórum hópi fólks. Þrátt fyrir erilinn var eitt öruggt. Klukkutími á dag var frátekinn til íhugunar. Einn daginn lá óvenju mikið fyrir og aðstoðarmenn Gandhi sáu ekki fram úr dagskránni. Þá tilkynnir okkar maður “það er svo mikið að gera að í dag mun ég ekki hugleiða í klukkutíma”. Sumir voru fegnir en umfram allt undrandi; þetta hafði aldrei gerst áður. “Í dag er svo mikið að gera að við þurfum að íhuga í tvo klukkutíma” bætti Gandhi við.

Heitt hjarta en kaldur haus. Þó verkefnin séu mörg og flókin þá verðum við að gefa okkur tíma og/eða tóm til að leysa þau vel. Allar hendur á dekk.

Við lifum merkilega tíma. Það eru miklar breytingar alls staðar í kringum okkur. Ekki bara þessi misserin heldur þessa áratugina. Heimurinn er að gjörbreytast í kringum okkur og Ísland er líka að breytast, Þessar breytingar eru stærri en svo að tengjast bara efnahagshruninu og afleiðingum þess. Þær breytingar sem tengjast gróðurhúsaáhrifum og ofnýttingu auðlinda jarðarinnar, stórkostlegri fjölgun flóttamanna, krossáhrif rísandi, fallandi og hrynjandi gjaldmiðla hingað og þangað um heimskringluna osfrv osfrv.

Við erum að ofnýta jörðina sem er ekki góður bissniss því komandi kynslóðir eiga að taka við henna og við eigum ekki aðra jörð til vara.

Internetið, breyttir framleiðsluhættir, hnattvæðing, upplausn heimsvelda, auknir ferðamöguleikar milli landa og heimsálfa. Allt hefur þetta stórkostlegar breytingar í för með sér fyrir lífsstíl, og lífsgæði fólks og samfélög okkar.

Ísland gengur í gegnum margar þessar breytingar einfaldlega vegna þess að við erum hluti af, og háð umheiminum. Þetta er ofan á þær breytingar sem við höfum verið að upplifa eftir hrunið, bæði fjárhagslegu kreppuna og þá andlegu sem líkja má við áfallastreitu.

Meistari Rúnar Júlíusson sálugi, sagði gjarnan “Það býr oft dúlbúin gæfa í áföllunum”. Það á að mörgu leyti við árin eftir hrun. Því á sama tíma og efnahagsáföllin dundu yfir og traust á stofnanir samfélagsins hrundi vaknaði líka ný hugsun um aðrar leiðir, önnur gildi og aðra aðferðafræði .

Það eru mikil átök í íslensku samfélagi í dag. En þau eru ekki bara um áhrif og völd, þau eru ekki einskorðuð við hægri eða vinstri, landsbyggð eða höfuðborgarsvæði, handhafa fjármagnsins eða almenning. Þessi átök eru um grundvallarbreytingar. Um það hvort við ætlum að gera hlutina öðruvísi, á lýðræðislegri hátt, að byggja upp til framtíðar og stokka upp í alvörunni. Eða ætlum við að halla okkur að því sem við erum vön.

Þessi sömu átök eru sýnileg á heimsvísu þegar við horfum á umhverfismálin, umræðuna um misskiptingu auðs innan samfélaga og á milli landa.

Ég held að það sé engin tilviljun að línurnar í þessum átökum séu frekar milli kynslóða frekar en annara hópa. Heimurinn er að gjörbreytast og er búinn að vera það í 2-3 áratugi. Þau sem eru yngri hafa einfaldlega alist upp við þessar breytingar. Þau átta sig á því að kyrrstaða, gömlu lausnirnar eru ekki lengur boðlegar.

Við tölum stundum um að það sé skortur á trausti í samfélaginu. Traust almennings til alþingis og stjórnmálaflokka er í frosti. Það er vont. En það er ekki vandamál almennings, vandinn hlýtur að liggja hjá okkur. Getur verið að vantraustið byggi á vantrú á því að við sem stundum stjórnmál alla daga séum meðvitað um breytingarnar í heiminum. Þetta þurfum við að afsanna, alþingismenn allir. Við þurfum að vera meðvituð um og tilbúin til þess að leiða breytingar til góðs. Jafnvel þó það sé erfitt og landslagið ókunnugt.

Ég ætla að tala aðeins um tilfinningar. Afstaða fólks til hvers annars, manna og málefna byggir oft á tilfinningum. Þetta á líka við um stjórnmál og þau málefni samfélagsins sem eru vettvangur stjórnvalda og alþingis.

Almenningur er vel inn í málunum og hefur sterkar og úthugsaðar skoðanir um flókin viðfangsefni þó hann sé ekki í fullu starfi eins og við sem hér sitjum, alþingismenn sem njótum í ofanálag aðgangi að her sérfræðinga. Alþingi er málstofa. Okkar hlutverk er að tala, en okkar hlutverk er ekki síður að hlusta og eiga samtal við almenning. Það hvernig við hlustum, eða virðumst stundum ekki hlusta, held ég að hafi meiri áhrif á það hvort almenningi finnist alþingi traustsins vert.

Það er ekki hægt að tala um tilfinningar án þess að minnast á vanda flóttamanna og í mínu tilviki að minnast á Jóhann Pétursson Risa. Flóttamannavandinn hefur hvílt þungt á mínu hjarta undanfarið eins og á hjörtum landsmanna. Það er óþolandi tilfinning að geta ekki gert meira til að hjálpa einstaklingum í neyð, einstaklingum sem eru að flýja til að bjarga lífi sínu og lífi barnanna sinna.

Í sumar átti ég leið um Byggðasafnið Hvoll á Dalvík. Þar er sýning um heimamanninn Jóhann Risa. Jóhann ólst upp í kreppunni og varð ungur risi að hæð. Hann eyðilagði á sér fæturna með því að stunda sjóinn í alltof litlum skóm. Á endanum sá Jóhann ekki fram á að geta framfleytt sér í heimalandinu og flutti utan þar sem hann stundaði sýningarstörf, á sjálfum sér. Störf sem hann hafði alltaf skömm á en neyðin kennir og allt það. Jóhann var flóttamaður frá eigin landi.

Ég hef alltaf upplifað að við Íslendingar höfum alltaf skammast okkar fyrir hlutskipti Jóhans. Við skiljum sögu hans af því hann var nanfgreindur maður, annálað góðmenni og úr sama umhverfi og afar okkar og ömmur. Eins skömmumst við íslendingar okkur fyrir aðgerðarleysi okkar gagnvart gyðingum á flótta við upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar.

Nú eru fleiri á flótta en nokkru sinni seinustu áratugi. Það er siðferðislega skilda okkar Íslendinga að gera betur í móttöku flóttamanna en auðvitað þarf að tryggja að rétt og vel sé haldið utan um það. Það er risavaxið verkefni. Við fögnum ráðherranefnd um málefni flóttamanna. Við í Bjartri Framtíð erum boðin og búin til þess að gera það sem við getum til þess að hjálpa til og styðja við góð verk.

Kæra Alþingi. Gerum betur. Stöndum að góðu en ekki lélegu. Stuðlum að réttlæti og berjumst gegn óréttlæti. Ég hef fulla trú á okkur alþingismönnum.

Við erum fólk, vinnum eins og fólk og verum eins og fólk.

Góðar stundir og góða ferð.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283