Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gefur þjóðinni dóp

$
0
0

Þorsteinn Úlfar Björnsson byrjaði í kringum 1978 að leggja drög að bók sem hann gefur nú þjóðinni. Bókin heitir Dóp – Notkun eða misnotkun? og fjallar eins og titillinn gefur til kynna um lyf af öllu tagi s.s. eins og kaffi, tóbak, svefnlyf, áfengi, kannabis, örvandi lyf, róandi lyf,ofskynjunarlyf, óralyf svo einhver séu nefnd. Hann vonar að bókin geti orðið fólki til gagns og verði til skaðaminnkunar .

„þótt hún (bókin) dygði ekki til að bjarga nema einu lífi ungmennis með fræðslu, teldi ég það bara fínt og mér væri full launað fyrir 40 ára grúsk.“

Við heyrðum örstutt í Þorsteini:

524739_110171262503857_1618348497_n

„Ástæðan fyrir því að ég byrjaði var að ég fór í 10 ára áfengisbindindi og stóð í því að afsaka hvers vegna ég drykki ekki. Það var bara of súrt. Ef maður lítur í kringum sig sér maður fljótt að allt þjóðfélagið er neysludrifið. Það er alltaf verið að finna sér afsökun til að komast í neyslu á vímugjöfum. Einkum áfengi.“

Þorsteinn Úlfar tilkynnti um gjöfina á Facebook síðu sinni með orðunum:

„Mannslífið er dýrt, misdýrt reyndar því ungmenni eru miklu dýrmaætari en skarfar eins og ég sem bíður bara eftir að komast á mjög prívat stað þar sem enginn getur fokkað í mér og ég fæ algeran frið. Meira að segja frá skattinum. Að ekki sé talað um framsógn og íhald.

En hér er ég kominn út fyrir efnið. Ég er búinn að vera að huxa um bókina mína DÓP! Notkun eða misnotkun? Hún var hugsuð sem skaðaminnkun því þótt hún dygði ekki til að bjarga nema einu lífi ungmennis með fræðslu, teldi ég það bara fínt og mér væri full launað fyrir 40 ára grúsk. En hún hjálpar engum ef enginn les.

Það sem gerði útslagið um ákvörðunina sem ég var að taka er fésbókarfærsla frá mannlegasta borgarfulltrúanum sem við Reykvíkingar höfum nú um stundir, Halldóri Auðar Svassyni. Eftir lestur pistilsins tók ég ákvörðun.Sem er þessi.

Dókin mín DÓP! Notkun eða misnotkun? Er öllum Íslendingum frjáls og frí til lestrar á útgáfusíðunni ISSUU, hér:

Og er ekki bara helvít „grand“ að gefa allri þjóðinni gjöf? :)

Bókina er hægt að nálgast eins og áður sagði hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283