Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Við erum öll falleg – bara misjafnt hvað heillar hvern og einn

$
0
0

Ég var að lesa grein eftir hann Frikka punk sem ég var ótrúlega ánægð með vegna þess að það eru svo fáir sem þora að opna á sér munninn og segja akkúrat þetta:

„Mér finnst horaðar smávaxnar konur flottar, en hvers vegna er þetta svona mikið bann að finnast þetta? Ég er að tala um nátturlega smávaxnar og mjóar konur sem eru alveg eins og photoshopuðu konurnar í glansblöðunum. Litill rass og smá brjóst eru yndisleg.“  – Frikki Punk (Svarti Álfur)

Mér finnst vanta allt hugrekki í fólk að tala um viðkvæm málefni og koma með sínar eigin skoðanir, vegna þess að oft standast þær ekki standarda eða eru álitnar „tabú“.

Ég er allavega þannig að ef ég hef eitthvað að segja, þá geri ég það.

Hvort sem ég er sammála eða ekki, hvort sem málefnið er viðkvæmt eða ekki og hvort sem að ég hafi ólík viðhorf eða ekki. Enda lendi ég oft í skrautlegum og viðburðarríkum samræðum, þar sem bæði ég og vonandi hinn aðilinn lærir helling á og jafnvel opnar augun fyrir hlutum sem ég hafði ekki pælt í áður eða vissi ekki af.

Grannar stelpur eru sexí, feitar stelpur eru sexí og stelpur sem eru mitt á milli eru líka sexí!

Mér finnst frábært hvað það er verið að taka á fitufordómum í samfélaginu og hversu vel það gengur. En á móti finnst mér ömurlegt hvernig við komum fram við grannar stelpur sem eiga erfitt með að bæta á sig, rétt eins og margar feitar stelpur eiga erfitt með að taka af sér kílóin.

Það er bara þannig að fólk hrífst af mismunandi hlutum, hvort sem það er matur, tónlist, kyn eða útlit. Við erum jafn ólík og við erum mörg, þess vegna er í raun ekki hægt að alhæfa hvað sé sexí og hvað ekki. Hins vegar getum við öll verið sammála um það að heilbrigði og hamingja er ALLTAF flott og sexí!

Mér finnst leiðinlegt að sjá þegar fólk póstar t.d. á samfélagsmiðlum myndum með textum sem segja að „alvöru konur séu með línur“ eða þvíumlíkt – því svo er sett hrikaleg pressa á stelpur að vera mjóslegnar.

Kynþokki felst nefnilega ekki aðeins í því hvernig maður er vaxinn, heldur líka og þá aðallega sjálfsöryggi og karakter.

Vissulega spilar útlitið mikið inn í, en umfram allt er það – eins og ég sagði áðan – karakterinn og sjálfsöryggið sem vegur mest.

Talað er um að útlitið grípi augað en að karakterinn haldi athyglinni.

Ég get ekki sagt annað en að ég sé fullkomlega sammála þessu, ég hef oft kynnst fólki sem mér finnst mjög aðlaðandi en hef svo misst allan áhuga vegna þess að karakterinn hélt mér ekki.

Enn fremur hef ég kynnst fullt af fólki sem mér hefur kannski ekki fundist mjög myndarlegt/aðlaðandi í fyrstu en síðan eftir því sem ég kynnist því betur þá breytist viðhorf mitt.

Í stuttu máli finnst mér að við ættum ekki að skammast okkar fyrir hvað heillar okkur, því það er vel hægt að heillast af einu án þess að atyrða annað.

Við erum öll falleg – bara misjafnt hvað heillar hvern og einn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283