Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ef ég nennti að blogga

Björgvin Valur Guðmundsson skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook og gaf okkur leyfi til að deila henni með lesendum okkar.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
11846552_10207567535094482_902933401088120687_n
Einu sinnu nennti ég að hafa skoðanir og viðra þær á bloggi og bara hvar sem ég gat. Sennilega hef ég ennþá einhverjar skoðanir en pólitíkin og ástandið í landinu er bara eitthvað svo sturlað að maður dofnar fyrir því og langar helst að leggjast undir sæng og bíða eftir að það líði hjá.

Það yrði reyndar löng bið því við erum Íslendingar og virðumst flest vilja hafa hlutina í fokkings vitleysu; láta ríku og freku kallana og stóru fyrirtækin hafa alla peningana í landinu vegna þess að þjóðarsálin er meðvirkur aumingi sem trúir að undirlægjuháttur skili henni því slæma lífi sem hún telur sig eiga skilið.

Þjóðarsálinni, Sögusálinni, alveg sama þótt samfélagsgerðin okkar (sem kannski hefur aldrei verið annað en blekking) hrynji; henni er alveg sama þótt innviðir samfélagsins molni bara á meðan ríku og freku kallarnir fá alla peningana okkar fyrir tilstuðlan stjórnmálamannanna sinna, stjórnmálamanna sem við kjósum sérstaklega til að framkvæma þann gjörning að færa fé frá þeim fátæku til hinna ríku.

Þjóðarsálin er ennþá þrællinn sem var pískaður og píndur af Íslendingum með ættarnöfn; barinn og sveltur af biskupum og landshöfðingjum; misnotaður af prestum og hreppstjórum. Þjóðarsálin er enn í þessum gír og kann ekkert annað en að vera undirlægja og skriðdýr; hún horfir upp til valdsmannanna með velþóknum og nýtur þess að láta berja sig.

Nema að nú er hún ekki hálshöggvin eða henni drekkt á Þingvöllum fyrir að vera nauðgað af húsbóndanum; hún er ekki húðstrýkt fyrir snærisþjófnað eða send á Brimarhólm; hún er komin í nútímann og lætur hafa af sér það sem hún á og henni ber; hún er þræll í eigin landi hér eftir sem hingað til og þannig vill hún hafa það.

Hún vill að útgerðarmennirnir eigi allan fiskinn í sjónum, henni líður illa yfir því að fallvötnin og jarðhitinn, ferskvatnið og sjálft súrefnið í andrúmsloftinu, skuli ekki vera komin í eigu auðstéttarinnar að fullu og öllu og hún vill að spítalarnir og allt annað sem hún á verði selt lægstbjóðanda með réttu samböndin sem fyrst svo hún geti tuðað yfir því þangað til eitthvert sturlað ungstirni kemur til landsins og ríður ungfrú Íslandi í beinni.

Eða þangað til kúgararnir koma með ómótstæðilegt tilboð fyrir næstu kosningar sem allir sjá í gegnum en af því að þetta eru þeir, þá kýs hún þá aftur þótt hún viti að þeir séu að ljúga og muni lúskra á sér aftur um leið og þeir hafa komið sér saman um það hvernig þeir ætli að rýja hana inn að skinninu eina ferðina enn.

En þá hefur hún líka eitthvað nýtt til að tuða um og allt verður gott.
Ég nenni ekki lengur að blogga en ætla þess í stað að horfa á Bubba éta orma á Snappinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283