Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Helvítis listamennirnir og öll þeirra laun

$
0
0

Tómas Ragnarsson rafvirki skrifaði eftirfarandi færslu á Facebooksíðu sína og gaf okkur leyfi fyrir birtingu hér:

Í byrjun hvers einasta árs upphefst þessi sami fjandans söngur.

Í ár var sjálfskipaður forsöngvari kórsins dægurflugusöngvari ættaður undan fossinum í Ölfusá sem ákvað að vorkenna mér og öðrum úr iðnaðarmannastéttinni ógurlega sökum þess að skatttekjurnar sem við sannarlega höfum stritað fyrir renna að ræfilslitlum hluta til lattetreflahjólreiðamussukomma sem sólunda fjármununum í að skapa einhvurn andskotann sem enginn vill kaupa.

Nú hvet ég poppgoðið sem og samsinnendur þess til að lesa pistilinn til enda.

Staðan er þannig á vinnumarkaði hjá okkur iðnaðarmönnum að ég hef svo mikið að gera í uppgefnu vinnunni minni að ég hef því miður engan tíma til að vinna svart.

Þetta er ekki tilkomið vegna þess að við eigum svo frábær álver.
Ekki vegna þess að krónan okkar sé svo frábær.
Ekki vegna þess að við hinir íslensku iðnaðarmenn séum betri en aðrir.
Ekki einu sinni vegna þess hve íslenska kýrin er góð – eða vegna bersýnilegra yfirburða hinnar íslensku agúrku.

Þetta er helvítinu henni Björk að kenna, og garðbæsku skrýmslabörnunum og álfadruslunum í Sigurrós, og Airwaves, mögulega reiða, úfna, feita mótmælendahobbitanum og jafnvel Eyjafjallajökli.

Allt þetta djöfulsins listapakk er búið að auglýsa upp klettinn minn út um gervalla heimsins tinda og dali – svoleiðis að hingað streymir aragrúi af féflettanlegum túristum, sem þvertaka fyrir það að sofa á BSÍ.

Því þarf ég og kollegar mínir að reisa hús yfir hausinn á þessu liði. Einhverjir þurfa jú að sinna þessum greyjum um mat, sundhallavörslu, hvalaskoðun, hvalkjötseldun, rútubílaakstur, bera kísildrullu í Bláa Lónið, vísa þeim til vegar, vísa þeim til sætis, vísa þeim á dyr, framreiða hamborgara og sjá um rúmklæðaskiptelsi.

Það lið þarf víst líka að búa einhversstaðar.

Hvar þetta endar veit enginn, en það er alveg á hreinu að raunveruleg þörf fyrir húsnæði er miklu meiri en á þvælutímabilinu fyrir hrun þegar sameinaðar Delfivölvur fasteignasalanna réðu för.

Því ætla ég að orða þetta eins pent og mér er unnt við andmælendur listamannalauna:

„Takið þessa umræðu og troðið henni upp í þvergripið á ykkur“.

Vanti ykkur aðstoð erum við iðnaðarmennirnir meira en til í að veita faglega ráðgjöf og aðstoð.

Ást og friður…Tommi


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283