Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Í dag er sorgardagur í sögu mannkynsins

$
0
0

Sema Erla Serdar skrifar:

Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn hafa nú þegar tapað heimalandi sínu í hendur hryðjuverkamanna, heimilum sínum og öllum þeim munum sem þeir hafa þurft að skilja eftir þegar þeir ákváðu að yfirgefa landið sitt.

Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn hafa flestir þurft að skilja eftir fjölskylduna í stríðshrjáðu heimalandinu auk þess sem fjölmargir hafa misst fjölskyldumeðlimi á flótta, þeirra á meðal börnin sín.

Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn glíma nú margir hverjir við andlega og líkamlega erfiðleika auk þess sem þeir mæta virðingarleysi, ómannúðlegri meðferð og hatri næstum því hvert sem þeir fara.

Danir hafa nú ákveðið að taka af flóttamönnum þá fáu muni sem þeir hafa mögulega náð að flýja með auk þess sem þeir hafa ákveðið að gera flóttamönnum erfiðara fyrir með að sameinast fjölskyldu sinni ef þeir ákveða að sækjast eftir aðstoð frá Dönum.

Þessi fráleita ákvörðun danska þingsins mun fara beinustu leið í sögubækurnar, á sömu blaðsíðu og fjallar um aðgerðir nasista og góðvina þeirra gegn Gyðingum í seinni heimstyrjöldinni sem m.a. fólu í sér að leggja hald á eignir þeirra (sjá mynd hér að ofan.)

Það er hörmung að sjá siðmenntaða lýðræðisþjóð sem hingað til hefur byggt samfélag sitt á gildum eins og mannréttindum, réttlæti og jöfnuði, fara svona hrikalega út af sporinu.

Í dag er sorgardagur í sögu mannkynsins.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images