Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir hlýtur styrk

$
0
0

Fréttatilkynning frá Háskólanum á Bifröst

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, sviðsstjóri félagsvísindasviðs, hlýtur styrk til rannsóknarstarfa við Oxford-háskóla.

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, sviðsstjóri félagsvísindasviðs við Háskólann á Bifröst, hlaut á dögunum styrk (individual fellowship) úr Marie Sklodowska-Curie áætlun Evrópusambandsins til eins árs rannsóknarstarfa við Háskólann í Oxford á skólaárinu 2016–2017. Styrkir þessir eru veittir evrópskum rannsakendum (og samstarfsstofnunum þeirra) vegna tímabundinna rannsóknarstarfa við erlendar vísindastofnanir, auk kennslu og þjálfunar á sviði rannsókna.

Sigrún mun starfa við tónlistardeild Háskólans í Oxford en rannsóknarverkefni hennar snýr að tónlistarhefð og tónlistarstarfi innan veggja háskólans með sérstakri áherslu á sögu, hefðir og menningarpólitísk álitamál.

Hörð samkeppni hefur verið um þessa styrki og felst því mikil viðurkenning í þessari styrkveitingu. Háskólinn á Bifröst óskar Sigrúnu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283