Atli Þór Fanndal og Steinunn Ólína skrifa:
„Við öllum flóknum spurningum eru til einföld, auðskilin, röng svör.
– H. L. Mencken
Viðtal Fréttablaðsins við Sigmund Davíð Gunnlaugsson um Tortólaeignir forsætisráðherrahjóna er leiftursókn gegn skynsemi og siðviti lesenda.
Viðtalið afhjúpar enn einu sinni að fjölmiðlum 365 er beitt gegn almannahagsmunum í þágu sérhagsmuna. Spurningar blaðamanns virðast slægvitrar og snúnar en svörin renna uppúr Sigmundi eins og þaulæfðum leikara. Þó mörg svör hans séu illskiljanleg er hann aldrei krafinn frekari skýringa. Leikararnir fylgja handritinu línu fyrir línu. Þetta er stofudrama en ekki spunaverk.
Þegar blaðamaður étur upp margtuggin ósannindi verður viðtalið tilraun til heilaþvottar.
Forsætisráðherra beitir þunga embættisins til að ráðast gegn siðferðisvitund og dómgreind almennings og tilkynnir samfélaginu sem honum er treyst til að stýra:
– að það hafi jafnan rangt fyrir sér en hann rétt.
– að siðferðisreglur og hugmyndir um trúnað séu einungis lagaleg spursmál.
– að prinsipp og samviska hans sé eingöngu til staðar í einkalífinu.
– að gagnrýni á framferði hans sé hvimleiður þáttur í samfelldu einelti stjórnarandstöðu og andskota leiðtogans kæra.
Umfjöllun af þessu tagi er skaðleg íslensku samfélagi.
Þetta er ekki viðtalið sem allir fjölmiðlar landsins vildu fá.
Þetta viðtal er ekki viðtalið sem almenningur átti skilið.
Þetta viðtal er það viðtal sem forsætisráðherra vildi veita.
Og það fékk hann í skjóli 365 miðla.
Myndskreyting eftir Láru Garðarsdóttur