Það er mér algjörlega ómögulegt að muna af hverju við höldum upp á páska og af hverju það eru allir þessir frídagar í kringum þá. Oftast man ég ekki eitthvað ef það er leiðinlegt eða ómerkilegt. Í huga mér og margra eru páskarnir fyrst og fremst bara frí. Nokkrir dagar með fjölskyldunni til að hlaða batteríin, komast á skíði eða horfa á eitthvað af þessum tíu þúsund þáttaseríum sem allir eru alltaf að tala um.
Byrjun setningarinnar „Við minnumst þess á páskum …“ er hins vegar mér mjög minnisstæð þar sem ég hef lesið eða heyrt ófáa pistlana frá prestum þar sem þeir minna okkur á hvað gerðist á þessum dögum. Þeir eru bara svo leiðinlegir að þessi byrjun er það eina sem ég heyri, síðan dett ég út.
Ég veit þó að á Föstudaginn langa færði Jesús okkur þá mestu fórn sem hægt er að færa. Hann var krossfestur og síðan dó hann og reis upp aftur frá dauðum. Fyrir utan það að vera augljós lygasaga þá er þetta bara ekkert merkilegt.
Ég lít ekki á það sem fórn að deyja ef þú veist að þú ert að fara að lifna við aftur eftir nokkra daga. Heima hjá mér er það kallað að sofa úr sér. Svo þessi merki atburður í trú kristinna manna gerist fjórum sinnum í mánuði að minnsta kosti í lífi hvers háskólanema.
Það er gaman að hafa allt gult, frí er snilld og páskaegg setjast ekki utan á mig. Þess vegna held ég upp á páska og mun gera það áfram þó að hér væri engin þjóðkirkja á fjárlögum.
Páskarnir eru yndislegir fyrir flest okkar. Ekki reyndar hjá öllum samt. Ég efast til dæmis um að aðstoðarmenn forsætisráðherra hafi það náðugt nú yfir páskana. Þeir eru á bullandi yfirvinnu við að reyna að skera ráðherrann úr snörunni. Þeirra málflutningur er á þá leið að verið sé að krossfesta frelsarann Sigmund.
Þegar hafið var yfir allan skynsamlegan (og siðferðislegan vafa) að forsætisráðherrann væri óhæfur og hefði verið gerður brottrækur í öllum lýðræðisríkjunum í kringum okkur, þá reis Sigmundur upp frá dauðum á þriðja degi og mætti í viðtöl hjá vinum sínum á Útvarpi Sögu og 365.
Ef forsætisráðherra landsins neitar að mæta í viðtöl nema hjá þér og Útvarpi Sögu þá segir það þér að fréttastofa þín er drasl. Fréttamenn hjá 365 ættu alvarlega að fara að líta í eigin barm þegar háttvirtur forsætisráðherra metur það svo að honum sé óhætt að mæta með bullið í sér til þeirra og Arnþrúðar.
Enn eru sumir sem neita að horfast í augu við staðreyndir og sjá ekkert athugavert við feluleik forsætisráðherrans með fjölskylduauðæfin. Þeir ættu að nota tækifærið núna á páskum og færa veruleikafirringu sína upp á næsta stig.
Stofna kirkju Sigmundar Davíðs. Þar gætu menn predikað að það sé ekkert óeðlilegt að eiga milljarða í skattaskjólum, ljúga sig áfram til valda og frekjast áfram að framsóknarsið.
Boðorðin tíu í kirkju Sigmundar Davíðs gætu hljómað svona:
1. Ég er bjargvættur heimilanna, þú skalt ekki aðra bjargvætti hafa.
2. Þú skalt ekki gera grín að Framsóknarflokknum eða leggja nafn hans við hégóma.
3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan. Hvíldardagur er hver sá dagur þar sem eitthvað óþægilegt er til umræðu um þig og alltaf þegar fréttamenn vilja ná tali af þér. Nema 365 og Útvarp Saga náttúrlega.
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður. Gera má undantekningu á þessari reglu ef faðir þinn selur bílaumboð fyrir milljarða og þér finnst hann ekki gefa þér nóg af peningum. Þá má fara í mál við föður sinn til að fá fyrirfram greiddan arð.
5. Þú skalt ekki stakt orð segja við fréttamenn RÚV.
6. Þú skalt ekki halda framhjá Framsóknarflokknum með öðrum flokkum.
7. Þú skalt ekki stela og því er mjög mikilvægt að greiða alla skatta og gjöld af eignum sínum sem eru faldar erlendis. Einnig flokkast ekki undir að stela ef hægt er að kaupa verðmæti langt undir markaðsvirði í gegnum sambönd og vinskap við aðra flokksmenn undir yfirskini einkavæðingar.
8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum. Kjósendur og blaðamenn falla ekki undir skilgreininguna á náunga og því má segja hvað sem er um þá.
9. Þú skalt ekki girnast eyðibýli náunga þíns sem hann kaupir til að geta boðið sig fram í öðru kjördæmi.
10. Þú skalt ekki girnast neitt sem náungi þinn á. Nema hann sé sjúklingur, öryrki eða aldraður, þá skaltu taka alla peningana hans.
Þjóðkirkjan lofar þér bættari hag eftir dauðann en það er bara of langt þangað til. Þá er Sigmundarkirkju miklu betri kostur en hún lofar þér hellings peningum einhvers staðar frá á fjögurra ára fresti. Það er betri díll.
Verst bara að hvorug kirkjan stendur við það sem hún segir.