Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Útskýrarinn ‘spögulerar’ um RÚV

$
0
0

„Hefur einhver séð í fréttum RÚV línu um að fréttastofa hafi beðið um viðtal við Vilhjálm Þorsteinsson og hann ekki þegið?“ skrifar Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, á Facebook rétt í þessu.

Jóhannes sem í daglegu tali er kallaður Jóhannes útskýrari, sökum fágætrar hæfni í því að leggja merkingu í málflutning Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, tekur hér þátt í enn einni moldviðristilraun Framsóknarflokksins eftir að upp komst að forsætisráðherrafjölskyldan geymir auð sinn í lögsögu alræmds skattaskjóls.
12910640_10207531150229898_888547238_n (1)

Leiðtogi Jóhannesar hefur eins og nokkuð frægt er orðið neitað að koma í viðtal við fréttastofu Ríkisútvarpsins vegna Wintris-málsins. Leiðtoginn kæri mun vera forsætisráðherra en umræddur Vilhjálmur er fyrrverandi gjaldkeri Samfylkingarinnar. Fyrrverandi vegna þess að Vilhjálmur Þorsteinsson sagði þá þegar af sér eftir að upp komst um að eignarhald hans á félagi í Lúxemborg og Kýpur.

Framsóknarfólki er almennt mikið í mun að stimpla alla gagnrýni sem ‘loftárásir’ óvildarmanna sem hati flokkinn. Útskýrarinn tekur hér þátt í þeim áróðri en þó með ‘kómískum’ hætti.

Raunin er auðvitað sú að Framsókn fer með forsætisráðuneytið og leiðir því ríkisstjórn Íslands. Það hefur almennt þótt eðlilegt að valdafólk undirgangist ríkari athugun og eftirlit en aðrir. Þetta hefur flokki forsætisráðherra gengið afar illa að skilja og því kveinka þau sér enn yfir allri fjölmiðlaumfjöllun sem og gagnrýni stjórnarandstöðunnar á þingi. Þess skal getið að stjórnarandstaðan hefur það lýðræðislega hlutverk að veita stjórnvöldum aðhald.

Forsætisráðherrastarfinu fylgja aðrar og meiri kvaðir en að vera gjaldkeri. Sú mikla ábyrgð sem fylgir ráðherrastarfinu mun einmitt vera ástæða þess að Útskýrarinn er með vinnu og fær laun sín greidd frá almenningi.

Sigmundur Davíð, einnig opinber starfsmaður, hefur frá því að upp komst um málið aðeins svarað sérvöldum fjölmiðlum. Þá hefur hann tekið viðtal við sjálfan sig og eiginkonu.

Kvennablaðið sagði frá því fyrr í vikunni að kaupmáli Sigmundar Davíð og Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur finndist ekki hjá sýslumönnum. Án réttrar skráningar hefði hann ekkert vægi. Í fréttinni kom einnig fram að mögulegt væri að arfur Önnu Sigurlaugar væri séreign vegna skilyrða erfðarskrár. Erfðaskrár eru hins vegar ekki aðgengilegar með sama hætti og kaupmálar. Forsætisráðherra hefur viðurkennt að hafa átt í félaginu og sagt það mistök erlends banka en ekki sýnt fram á neitt því til sönnunar. Þá hefur hann viðurkennt að hafa selt konu sinni helmingseign í félagi með milljarðaeign á dollar. Slíkt er málamyndagjörningur og þykir ekki mjög heiðarlegt. Salan átti sér stað eftir að ‘mistök’ erlenda bankans uppgötvuðust og eftir að arfurinn var greiddur með hugsanlegum séreignarákvæðum.

Þá vaknar spurning um hvers vegna forsætisráðherra seldi eitthvað sem aldrei var hans að eiga?

Hálfur mánuður er síðan eiginkona Sigmundar uppljóstraði upp um Wintris inc. og þá staðreynd að forsætisráðherrafjölskyldan telur öruggara að geyma auð sinn í öðru hagkerfi og öðrum gjaldmiðli. Síðan þá hefur forsætisráðherrar verið á hlaupum frá öðrum en sérvöldum fjölmiðlum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er enn um sinn forsætisráðherra. Þeim stól getur hann haldið í skjóli sérhagsmuna. Hann tapaði hins vegar almenningsálitinu fyrir löngu síðan. Það mun skipta nokkru máli fyrir dóm sögunnar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283