Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Óstjórn augnabliksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, bar fram tillögu á þingflokksfundi Framsóknarflokksins í dag að Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra tæki við sem forsætisráðherra.

Sigmundur Davíð verður samt sem áður – áfram formaður Framsóknarflokksins.

Bjarni Benediktsson ætlar að ræða við Sigurð Inga og telur að ef þeir nái saman þá muni vantraustsyfirlýsing stjórnarandstöðunnar falla um sjálft sig.

Sigmundur Davíð segir forseta Íslands ljúga samkvæmt frétt Vísis þar sem vitnað er í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu:

„Forsætisráðherra og forseti Íslands áttu fund á Bessastöðum nú laust fyrir hádegi í dag. Á fundinum upplýsti forsætisráðherra forseta um stöðu mála í stjórnmálum hér á landi og greindi jafnframt frá áformum sínum um að leggja til við forseta að þing yrði rofið og boðað yrði til almennra alþingiskosninga ef í ljós kæmi að meirihluta stuðningur við ríkisstjórnina væri brostinn. Formleg tillaga um þingrof var hvorki borin upp á fundinum né kynnt forseta eins og skilja mátti af ummælum forseta Íslands að fundi loknum. Forsætisráðherra tjáði forseta að hann hygðist bera þingrofstillögu formlega upp við forseta ef niðurstaða um framangreint lægi fyrir,“

Fyrr í dag sögðum við frá blaðamannafundi Ólafs Ragnars eftir fund hans með SDG en þar sagði Ólafur að forsætisráðherra hefði óskaði eftir heimild forseta til að rjúfa þing en hefði jafnframt EKKI getað fullvissað Ólaf um stuðning samstarfsflokksins. Að því gefnu sagðist Ólafur ekki hafa verið tilbúinn til að gefa forsætisráðherra umboð til að rjúfa þing og undirrita bréf um þingrof.

Mótmælt er nú á Austurvelli annan daginn í röð. Kosningar strax er krafan!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283