Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Seinheppinn maður fólksins missir heyrn

$
0
0

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, er maður fólksins.

Hann hlustar grannt eftir vilja fólksins.

Þegar það hentar honum.

Það hentaði honum illa að íslenska bankakerfið skyldi hrynja árið 2008. Einkum vegna þess að hann hafði spyrt sig rækilega við útrásarvíkinga, skaðvalda, sem sumir hverjir eru nú dæmdir menn fyrir meiriháttar fjársvik.

Ímynd forsetans laskaðist.

Hvað var þá til ráða?

Icesave!

Enn hlustaði forsetinn eftir vilja fólksins. Hann komst að því að milli þjóðar og þings hafði myndast gjá. Rauður bjarminn af Icesaveblysunum fyrir utan Bessastaði lýsti honum leiðina til að bæta orðstýrinn.

Hann skaut því málinu til þjóðarinnar. Þjóðin hans felldi samninginn með braki og brestum.

Þingið greip til sinna ráða; ríkisstjórnin þáverandi fékk alla að samningaborðinu og sérfræðinga til verka. Buchheitsamningurinn varð til. Þingið samþykkti samninginn með auknum meirihluta, 70 prósent atkvæða.

Þingið er þjóðkjörið og á að endurspegla vilja þjóðarinnar, ekki satt?

En forsetinn, sem hlustar grannt eftir vilja fólksins, greip enn á ný fram fyrir hendur þingsins. Aftur kom hann auga á gjá milli þings og þjóðar og skaut málinu til þjóðarinnar. (Hún felldi samninginn með 60 á móti 40.)

Maður fólksins í stjórnarandstöðu…

Eða leið forseta allrar þjóðarinnar bara vel í stjórnarandstöðu við Jóhönnu og Steingrím J.? Vissi hann ekki eins og við hin að árið 2011 átti slitabú Landsbankans fyllilega fyrir öllum Icesavekröfum Hollendinga og Breta?

Já, var honum ekki líka í nöp við stjórnarskrárbrölt Jóhönnu og Steingríms?

Ef rétt er munað sagði Ólafur Ragnar í áramótaþætti Rásar 2 sama ár og síðari Icesave þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram að hann hefði vel getað hugsað sér að samþykkja Buchheitasamninginn. Enda er það mál manna þegar öll kurl eru nú til grafar komin að Buchheitsamningurinn hafi verið fullt eins hagkvæmur þjóðinni og það sem ofan á varð.

En auðvitað þarf forsetinn að hlusta eftir vilja þjóðarinnar.

Þegar það hentar.

… og stuðningsmaður Sigmundar Davíðs

Goðumlíkur Ólafur Ragnar hlaut að vera sjálfkjörinn leiðtogi fólksins í forsetakosningum 2012 eftir þjóðrembda Icesavesigrana með Sigmundi Davíð og InDefence.

Ólafur Ragnar ákvað eftir þennan vel heppnaða herleiðangur með Sigmundi Davíð að láta kné fylgja kviði og gera hann að forsætisráðherra eftir góðan sigur í þingkosningunum 2013. Þótt svo að hann stýrði næst stærsta stjórnmálaflokknum en ekki þeim stærsta.

Hann fól Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni umboð til stjórnarmyndunar.

Skyndilega stóð þjóðin nú uppi með sama stjórnarmynstur sérhagsmunagæslunnar og verið hafði síðustu 13 árin fram að hruni.

Nú er Sigmundur Davíð fallinn eftir að hafa orðið uppvís að lygum, leynimakki, aðstöðubraski og forréttindabrölti sem hneykslað hefur allann heiminn. Gæludýr forsetans, ríkisstjórn Sigmundar Davíðs, reynist vera spilltasta ríkisstjórnin í sögu lýðveldisins með forhertri varðstöðu um sérhagsmuni og einbeittu leynimakki hinna ríku.
Þegar svikahrappurinn var fallinn voru góð ráð dýr og best fyrir forsetann að drífa sig til landsins. Nú yrði að hlusta grannt eftir vilja þjóðarinnar.

Ekki að það hafi verið nein vandræði að komast að því hvað þjóðin vildi; vilji hennar stóð í fyrirsögnum stærstu fjölmiðla heimsins.

Þjóðin vill kosningar (eða veit forsetinn betur?)

En nú fipaðist forsetanum eitthvað. Hann heyrði ekki nægilega skýrt að þjóðin krafðist þingrofs og kosninga.
Tækifærið fékk hann ósofinn úr flugferð yfir hafið þegar forsætisráðherrann stormaði til Bessastaða að morgni dags og bað um undirskrift forsetans til að rjúfa þing og boða til kosninga.

Var það ekki vilji fólksins að boða til kosninga eins fljótt og verða mætti? Mátti ekki einu gilda hver undirritaði með forsetanum boð um þingkosningar? Var það ekki líka í anda stjórnskipunarinnar?

Hvað veldur þessu heyrnarleysi forsetans nú?

Því lét hann úr greipum sér renna tækifærið til að fara að vilja fólksins? Ekki er hann vanur því?

Eða heyrir hann bara vilja fólksins þegar það hentar?

Hentar það Ólafi Ragnari að hafa áfram við völd ríkisstjórn forréttindafólks sem uppvís hefur orðið að alvarlegri spillingu og bakað þjóðinni ómælt tjón og hneisu?

Kannski er Ólafur Ragnar líka orðinn gleyminn. Hann man vafalaut ekki það sem hann sagði sjálfur um spillingu stjórnkerfisins hér á landi í Mannlífsviðtali árið 2009:

„[Það]óf saman stjórnmálaflokkana og embættiskerfið í einhver skonar flokksræði þar sem forystumenn flokkanna höfðu drottunarvald yfir embættiskerfinu í ríkari mæli en hollt var fyrir lýðræðið. Flokkarnir skipuðu miskunnarlaust sína fulltrúa í embætti innan ráðuneyta og í öðrum stjórnarstofnunum, dyggir flokksmenn höfðu forgang, almennir hæfileikar, menntun og reynsla var ekki ráðandi.“

Gleymskan veldur því að áfram verður þetta svona í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta lýðveldisins.

Myndskreyting Kristján Fr. Kristjánsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283