Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Birgitta Jónsdóttir: „Þið eruð óvissan“

$
0
0

„Þið eruð óvissan“ kallaði Birgitta Jónsdóttir, talskona Pírata, að verðandi forsætisráðherra í þingsal. Sigurður Ingi Jóhannesson hafði þá rétt lokið við að verja áframhaldandi stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á þeim forsendum að koma yrði í veg fyrir óstöðugleika sem fylgja myndi kosningum.

Ríkisstjórnarflokkarnir hafa undanfarnar vikur stefnt íslensku samfélagi í fordæmalausa óvissu og átök í tilraunum sínum til að halda völdum. Í skjóli stjórnarflokkanna hafa þingmenn stjórnarmeirihlutans með verðandi fyrrverandi forsætisráðherra Sigmund Davíð Gunnlaugsson í fararbroddi. Þingmenn hafa ráðist á fjölmiðla, sakað stjórnarandstöðu um ómálefnaheit og tækifærismennsku sem og neitað að svara spurningum.

Nú óskar ríkisstjórnin hins vegar griða til að koma á stöðugleika. Fátt bendir til þess að stjórnarandstaða og almenningur taki því boði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283