Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mótmælendur björguðu ásýnd Íslands

$
0
0

Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, sagði mótmælendur hafa bjargað ásýnd Íslands og Íslendinga eftir að upp komst um að þrír ráðherrar í ríkisstjórn Íslands tengdust félögum í skattaskjóli. Hún sagði ríkistjórnina hafa farið í andlitslyftingu og það hefði ekki verið það sem mótmælendur kröfðust.

Screen Shot 2016-04-07 at 12.39.52

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, sagði með ólíkindum að koma ætti á ríkisstjórn með ráðherra innanborðs sem ættu fyrirtæki í skattaskjóli. Hún beindi orðum sínum að Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins. „Þegar hann er spurður ágengra spurninga um þessa sögu sína þá eys hann óhróðri yfir þá sem það gera en segir jafnframt að ekki skuli persónugera málið,“ sagði Sigríður.

Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartar framtíðar, sagði með ólíkindum að þingmenn Framsóknarflokksins ætli að styðja Sigmund Davíð Gunnlaugsson eftir framkomu hans gagnvart þeim undanfarna daga.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283