Kynnir Óskarsverðlaunanna Ellen DeGeneris ákvað í miðjum hátíðarhöldunum að gefa stjörnunum eitthvað í gogginn og pantaði pizzu fyrir mannskapinn. Pizzasendillinn sem Ellen Degeneris kynnti til sögunnar var alls óundirbúinn þegar hann var beðin um að koma með pizzur í Kodak leikhúsið. Hann vissi ekki fyrr en hann var komin á sviðið sjálft og í beina útsendingu með öllum helstu kvikmyndastjörnum heims. Ellen bauð honum svo í þáttinn sinn í gær og þar fékk hann þjórféð sem hún safnaði frá leikurunum í salnum.
↧