Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Auðvaldið malar gull á meðan börn fátækra líða skort

$
0
0

Ellen Calmon formaður ÖBÍ skrifar:

Í tilefni af 1. maí á morgun mun Öryrkjabandalag Íslands ganga undir slagorðunum: „Fæði, klæði, húsnæði – fyrir alla!“  Ástæða þess er að á Íslandi fyrirfinnst fátækt.  Á undanförnum árum hefur fjölgað í hópi barna sem líða skort á Íslandi.

Þegar börn líða skort eru mannréttindi barna ekki að fullu virt eins og fram kemur í þriðja lið 27. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið fullgildur á Íslandi frá 27. nóvember árið 1992  en þar segir:

„Aðildarríki skulu í samræmi við aðstæður sínar og efni gera viðeigandi ráðstafanir til að veita foreldrum og öðrum sem ábyrgir eru fyrir uppeldi barns aðstoð til að neyta þessa réttar, og skulu þegar þörf krefur láta í té efnislega aðstoð og sjá fyrir stuðningsúrræðum, einkum að því er fæði, klæðnað og húsnæði snertir.”

Samkvæmt fjárlögum íslenska ríksins fyrir árið 2016 eru aðstæður og efni hér nægilega góð svo enginn ætti að líða skort. Börn líða skort þegar foreldrar þeirra eða forráðamenn hafa ekki tekjur sem duga. Foreldrar þeirra eða forráðamenn eru láglaunafólk eða örorkulífeyrisþegar. Þrátt fyrir íslenskt velmegunarsamfélag nútímans sem svo fjölmargir tönnlast á, þá líða yfir 6.100 börn skort á Íslandi skv. skýrslu UNICEF sem kom út í byrjun árs.

Mér finnst þetta ólíðandi staðreynd sem samfélagið allt ætti að taka höndum saman um að breyta.

Forseti Íslands á að gera það að hlutverki sínu að vekja athygli á málefnum er varða mannréttindi, benda á mikilvægi þess að allir hafi jöfn tækifæri til þátttöku í íslensku samfélagi. Hann á að hlúa að þeim sem landið byggja og tala fyrir mikilvægi þess að velferð allra barna sé tryggð. Enda á enginn að þurfa að búa við fátækt eða skort á fæði, klæði eða húsnæði á Íslandi.

 Í innsetningarræðu forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar þann 1. ágúst 1996 sagði hann:  

„Á næstu misserum er brýnt að mynda þjóðarvilja og trausta samstöðu um að lífskjör allra Íslendinga jafnist á við það sem best gerist með nágrannaþjóðum okkar. Án slíks árangurs gæti ungt fólk glatað trú sinni á Ísland sem framtíðarheimkynni“.

Sjá hér:  http://www.forseti.is/media/files/96.08.01.Innsetning.pdf

 Í fyrsta nýársávarpi Ólafs Ragnars 1. janúar árið 1997 sagði hann ennfremur:

„Siðaboðskapur kristninnar og íslensk þjóðmenning fela í sér þá kröfu að hver og einn geti framfleytt sér og sínum á sómasamlegan hátt, látið börnum í té vandað uppeldi og treyst því að sjúkir og aldraðir fái þá umönnun sem hæfir sóma okkar og heiðri. Sú framför sem einungis birtist í hagtölum en færir ekki líf fólksins í betra horf er harla lítils virði. Velferð sérhvers einstaklings er í raun markmiðið með viðleitni samfélagsins við að bæta lífskjörin í landinu“.

Sjá hér: http://www.forseti.is/media/files/97.01.01.Nyarsavarp.pdf

Síðan þá höfum við upplifað landflótta fjölda fólks, meðal annars vegna þess að ekki bjuggu allir Íslendingar við sömu lífskjör. Ungt fólk hefur margt hvert glatað trú sinni á Íslandi sem framtíðarheimkynnum. Framför í hagtölum sem við sjáum nú, skilar sér ekki til þeirra sem mest þyrftu framfarar við. Fátæktin bitnar nú á börnum Íslands, framtíðinni.

Þegar við skoðum ferðir forseta Íslands á árunum 2012, 2013 og 2014 þá eru flestar ferðir hans, eða tuttugu og tvær tengdar orkumálum, Norðurslóðum og loftslagsmálum. Níu ferðir væri hægt að flokka sem opinberar heimsóknir eða embættisferðir og fimm ferðir eru um ýmis önnur mál s.s. viðskipta- og efnahagsmál. Engin ferð tengist mannréttinda- eða velferðarmálum minnihlutahópa þar með talið barna.

Sjá hér: http://www.althingi.is/altext/144/s/0887.html

Á dagskrá forseta Íslands sem birtist á heimasíðu forsetaembættisins frá árinu 2015 eru afskaplega fá dagskráratriði tengd mannréttindum, fátækt eða velferð á Íslandi.  Tvö dagskráratriði tengjast Fjölskylduhjálp Íslands og fjögur dagskráratriði tengjast fötluðu fólki eða örorkulífeyrisþegum.

Þegar forsetinn talar um fátækt samkvæmt dagskrá forseta ársins 2015 þá er það einna helst um hvernig Ísland hefur þróast frá því að vera fátækt samfélag í velmegunarsamfélag. Fátækt á Íslandi, í huga forseta á árinu 2015, hlaut því að tilheyri fortíðinni.

Sjá hér: http://www.forseti.is/Dagskraforseta/Urdagskra2015/

Þrátt fyrir að forsetinn hafi lagt áherslu á mál er varða mannréttindi, lífskjör og velferð í innsetningarræðunni og í fyrsta nýársávarpinu, þá er ekki hægt að sjá að hann hafi lagt mikla áherslu á fylgja þessum málefnum eftir í reynd, þegar skoðaðar eru ferðir hans á árinum 2012,2013 og 2014 auk dagskrár forseta ársins 2015.

Á sama tíma fjölgar börnum sem líða skort á Íslandi. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands fjölgar einnig í hópi örorkulífeyrisþega sem búa við skort, fleiri örorokulífeyrisþegar fresta læknisþjónustu og neita sér alfarið um tannlæknaþjónustu vegna þess að þeir hafa ekki efni á henni.

Í nýársávarpinu 1. janúar sl.  sagði Ólafur Ragnar:

„Því ættum við öll að geta tekið höndum saman um að bæta enn frekar hag aldraðra og öryrkja og að gera loksins gangskör að útrýmingu fátæktar úr íslensku samfélagi, fátæktar sem er því miður enn smánarblettur…“.

Sjá hér:  http://www.forseti.is/media/PDF/2016_01_01_Aramotaavarp.pdf

Þrátt fyrir þessi orð um að gera þurfi gangskör í að útrýma fátækt og að hún sé smánarblettur, þá er ekki að sjá sérstakan viðburð á dagskrá forseta það sem af er ári 2016 sem tengist mannréttindum, fátækt eða velferð á Íslandi.

Hins vegar er alveg ljóst að forsetinn hefur á síðast liðnum misserum lagt mikla áherslu á, bæði má sjá það í dagskrá forseta og á ferðum hans, loftslags-, orku- og umhverfismál sem eru sannarlega mikilvæg.

Þrátt fyrir áhugamál forseta er auðvaldið að mala gull á náttúrunni sem hefur fengist á spottprís á meðan börn fátæka fólksins líða skort.

Finnst okkur í lagi að þúsundir barna búi við skort á Íslandinu ríka?

Ég vonast til þess að hver sá sem hlýtur kjör til embættis forseta Íslands í kosningnum í sumar muni leggja áherslu á mikilvægi þess að í íslensku samfélagi séu mannréttindi allra virt, að fólk búi við sífellt batnandi lífskjör þar sem allir hafa jafnan rétt og jöfn tækifæri til þátttöku.

Að lokum hvet ég ráðamenn og alla þá sem eru í framboði til forseta að taka þátt í mannréttindagöngu Öryrkjabandalags Íslands undir slagorðunum „Fæði, klæði, húsnæði – fyrir alla!“ en við munum safnast saman við Hlemm kl. 13 á morgun sunnudaginn 1. maí og ganga eða rúlla saman gegn fátækt.

Stuðlum saman að betra samfélagi fyrir alla! 

Ellen Calmon formaður ÖBÍ

 

12994392_772845209519188_5031383916890480359_n

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283