Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Landinu er stjórnað af pólitískum kjánum

$
0
0

Þingmenn og ráðherrar hægriflokkanna slógu sér rækilega á brjóst í dag vegna upplýsinga sem fram komu um aukinn jöfnuð í landinu.

Málið var sett á dagskrá ríkisstjórnarinnar þar sem ráðherrar hafa líklega rætt málið í þaula og skálað fyrir góðum árangri. Í það minnsta var send út yfirlýsing sem vitnaði um það sem fram fór á þeim fundi.

Hún hefur nú verið leiðrétt með stuttum texta neðst í yfirlýsingunni. Þingmenn tóku ræddu málið úr ræðustól AlþingisRáðherrar skrifuðu um málið á netinu.

Allt var þetta gert út frá því að um pólitísk afrek þeirra sjálfa væri að ræða. Það kom svo í ljós að það var rangt. Kolrangt.

En þau voru tilbúin að stökkva á það í þeirri von að geta blekkt almenning.
Landinu er stjórnað af pólitískum kjánum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283