„Þarft þú að vera með grímu auminginn þinn?“ kallaði þingmaðurinn Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á mótmælanda í gærkveldi. Hópur fólks safnaðist fyrir utan Súlnasal Hótel Sögu til Panamagrills í andstöðu við veisluhöld Alþingis á hótelinu. Þingmönnum og mökum ásamt þeim varamönnum sem tekið hafa sæti á þingi í vetur var boðið til mikillar veislu. Þá var forseta lýðveldisins, Ólafi Ragnari Grímssyni, boðið að sitja veisluna.
Skipuleggjendur hvöttu fólk til að mæta með bananaknippi til að kasta fyrir framan húsið og veisluna. Mótmælendur báru skilti sem á stóð „Bless Bjarn1.“ Hópurinn sem stóð að mótmælunum skipulagði nýlega mótmæli á útivistasvæði hjá heimili Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra.
„Aðeins 5000 krónur kostar að þiggja veislukvöldverðinn og kemur fram í veisluboðinu að Alþingi muni greiða ferðastyrk fyrir þá sem koma utan af landi,“ segir í umfjöllun Hringbrautar um veisluna. „Miðað við veitingar er væntanlega vandfundin ódýrari kvöldskemmtan en óvíst er þó að allir muni skemmta sér vel. Dræm þátttaka var í síðustu þingveislu, sem endaði raunar þannig að hún leystist upp vegna mórals og óánægju.“





