Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Úkraína sýnir Rússum fingurinn með sigri sínum

$
0
0

Það var Úkraína sem bar sigur úr býtum þetta árið í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Söngkonan Jamala sem er af Tataraættum sigraði Ástrali með naumindum, með laginu 1944. Hápólitískur texti og flutningurinn magnaður. Þetta mun vera pólitískasta atriði söngvakeppninnar í manna minnum. Lagið er byggt á sögu langömmu Jamölu sem var undir harðstjórn Stalín flutt nauðungarflutningum  til Asíu ásamt fimm börnum sínum og er viðlagið byggt á orðum langömmu hennar.

Að sögn Jamölu er ballaðan 1944 ekki bara um nauðungarflutninga Tatara frá Krímskaganum árið 1944, heldur ekki síður um yfirgang Rússa síðustu tvö ár.

Rússneskir stjórnmálamenn og reyndar yfirvöld á Krímskaganum líka gerðu athugasemd við að Úkraínumenn skyldu senda þetta lag inn því með flutningi þess væri gagngert verið að reyna að móðga Rússa og höfða með klækjum til samúðar Evrópu. Lagið fékk þó að halda velli í keppninni því engan beinan pólitískan áróður er að finna í textanum þótt það sé öllum ljóst sem það vilja skilja, um hvað er sungið með vísan til ártalsins 1944 sem er titill lagsins og textans sjálfs.

STOCKHOLM, SWEDEN - MAY 12:  Jamala representing Ukraine performs the song "1944" during the semifinals of the 2016 Eurovision Song Contest at Ericsson Globe Arena on May 12, 2016 in Stockholm, Sweden. (Photo by Michael Campanella/Getty Images)

Textinn í lauslegri þýðingu er á þessa leið:

1

Þeir koma að utan
að húsinu þínu
Þeir drep’ykkur öll
og segja
Við erum saklausir
saklausir

Hvað eruð’i að hugsa?
Heimurinn spyr
Þið haldið ykkur guði
en deyðið allt kvikt
Ekki gleypa mína sál
okkar sál

2
Við gætum átt framtíð
þar sem fólk hefur frelsi
til að lifa og elska
Bjarta framtíð

Hvað eruð’i að hugsa?
Heimurinn spyr
Þið haldið ykkur guði
en deyðið allt kvikt
Ekki gleypa mína sál
okkar sál

Þessa óvæntu niðurstöðu kvöldsins skeggræða íbúar Twitter undir myllumerkinu #12stig af þrótti:


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images