Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sigríður Bylgja ráðin framkvæmdastjóri Pírata

$
0
0

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírataflokknum. „Sigríður Bylgja er með BA gráðu í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) frá Háskólanum á Bifröst og MSc í Mannvistfræði frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands og Landvernd.“ Þá kemur fram að Sigríður Bylgja hefur starfað hjá utanríkisráðuneytinu og Saga fest. Hún var handritshöfundur og framleiðandi heimildarmyndarinnar USE LESS í samstarfi við Vesturport og Vakandi.

Um þrjátíu umsækjendur sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Pírata. Af þeim voru átta boðaðir í viðtöl og umsóknir þeirra lagðar fyrir framkvæmdaráð. Framkvæmdaráð samþykkti einróma að ráða Sigríði Bylgju sem framkvæmdastjóra.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283