Kappræður fjögurra forsetaefna voru á dagskrá hjá Stöð 2 á milli klukkan 19:00 og 20:00 í kvöld. Umgjörðin var afslöppuð, spyrlar sátu fyrir miðju og þau forsetaefni fjögur sem ná einhverju máli í skoðanakönnunum voru gestir. Guðni Th. Jóhannesson er enn sigurstranglegastur með gríðarlegt forskot samkvæmt nýrri skoðanakönnun 365 miðla eða ríflega 65%. Davíð Oddsson er með tæplega 20% fylgi, Andri Snær Magnason með rétt undir 8% og Halla Tómasdóttir mældist með 2,5% fylgi í sömu könnun.
Kappræðurnar voru afslappaðar en kannski heldur þróttlitlar. Twittersamfélagið velti málum fyrir sér og við skulum skoða hvað sagt var um þá frambjóðendur sem sátu fyrir svörum í kvöld.
Fyrst koma nokkur Tvít um framistöðu Höllu Tómasardóttur:
Halla talar svo hratt að það er eins og það sé hún sé að bíða eftir að einhver taki af henni orðið—sem er líklega rétt. #forseti
— asgeir.berg (@asgeirberg) May 26, 2016
Halla óx í àliti. Andri heillandi. Guðni minn forseti en Davíð sà eini sem var með leiðindi út î fólk #forseti
— Margrét E. Long (@gilitrutt) May 26, 2016
Halla er að owna þessar kappræður (þegar hún fær að tala)! #forseti
— Sigurlaug (@gothSilla) May 26, 2016
Ok Halla, þú hefur unnið hjá stórfyrirtæki – we get it #forseti
— برينجار Birgisson (@brynjarb) May 26, 2016
Halla mega flott, gripið fram í fyrir henni endalaust af karlmönnum en hún tæklar það eins og fagmaður! #forseti
— Inga Fanney (@ingafanney) May 26, 2016
Þetta hafði Twitter um Davíð Oddsson að segja:
Ef þú ert að spá í því af hverju Davíð var ekki með köttinn þá er það vegna þess að hann var upptekinn. Það var verið að raka hann #forseti
— Birgir Örn (@birgirinn) May 26, 2016
Svona nú Davíð, ekki sitja á mannfyrirlitningunni og hrokanum, let it all out #forseti
— Örn Gunnþórsson (@ossigunn) May 26, 2016
DO opnaði sitt mál með brandara um hann að sofa hjá Dorrit… þetta hefur kannski verið samþykkt á fundi fyrr í dag #forseti
— Hallgrímur Helgason (@HalgrimHelgason) May 26, 2016
Hæ Davíð, hroki er ekki sama og völd.
Eina.#forseti— Son (@sonjajon) May 26, 2016
Davið vs Þorbjörn í forsetakjöri var hápunkturinn á annars daufum kappræðum #forseti
— Hafsteinn Árnason (@h_arnason) May 26, 2016
Davíð að rúlla kappræðunum upp og Halla vinnur á #forseti
— Orri Kristinn (@OrriKristinn) May 26, 2016
Guðni fékk nokkur ummæli eins og aðrir á Twitter:
Þeir sem kjósa Andra eða Davíð fram yfir Guðna eru asnar. There! I said it. #forseti
— Gudmundur Gudjonsson (@Studmundur) May 26, 2016
Allar setningar Guðna byrja á orðunum „Eins og Davíð sagði..“ #forseti
— Krummi (@hrafnjonsson) May 26, 2016
Ef ég væri með yfir 50% fylgi mundi ég fara heim slökkva á símanum leggjast upp rúm og halda niður í mér andanum til 25. Júní. #forseti
— Ómar Stefánsson (@OmarStef) May 26, 2016
Guðni er að negla þetta!
Kemur langbest út úr þessum umræðum.
Bætir bara í.#forseti #Guðni4prez— Marvin Vald (@MarvinVald) May 26, 2016
Guðni Th er forsetinn minn, toppmaður! Yfirvegaður, kurteis og málefnalegur. Hugsar í lausnum. #forseti
— Guðrún Jóna (@gudrunjonav) May 26, 2016
Guðni grísaðist til að eiga lokaorðin. Fellur allt með honum í þessum kosningum?
#forseti
— Andres Jonsson (@andresjons) May 26, 2016
Og að endingu nokkur tvít um Andra Snæ Magnason:
Efni í nokkrar nýjar bækur í svörum Andra. #langlokur #forseti
— Ásgrímur Hermannsson (@asiherm) May 26, 2016
Andri góður þegar talað er um Evrópusambandið og Evrópu #forseti
— E Andresdottir (@eandresdottir) May 26, 2016
Váááá, hvað hann er leiðinlegur, sagði sá 11 ára þegar Andri Snær talaði. Like mother, like son! #forseti
— Bergþóra Guðjónsdótt (@Beggagud) May 26, 2016
Andri Snær getur labbað inná þing í október #forseti
— Dagur Skírnir (@DagsiOdins) May 26, 2016
Andri Snær áberandi bestur #forseti #einlægur #minnforseti
— Ingibjorg Thordar (@IngibjorgThorda) May 26, 2016
Eru hendurnar á Andra Snæ líka í framboði? #forseti
— Jón Ingi Stefánsson (@jonistefans) May 26, 2016





