Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Svaðilför barna á leið í skóla

$
0
0

Skólabörn í Sichuan héraði þurfa að klifra 800 metra langan bambusstiga sem hangir utan í klettavegg til þess að komast heim úr skólanum.

1024x1024-5

Eftir að myndir af þessari svaðilför barnanna fóru að dreifast um internetið hafa kínversk stjórnvöld neyðst til að skoða hvort ekki komi til greina að byggja öruggari leið fyrir börnin í og úr skóla

1024x1024-1

Bambusstiginn er eina leiðin til að komast að þorpinu Atuleer þar sem börnin 15 búa en þau dvelja í skólanum í tvær vikur í senn yfir skólaárið. Í þorpinu Atuleer búa 72 fjölskyldur sem tilheyra fátækum þjóðarbrotsminnihluta sem kallast Yi og lifir aðallega á kartöflu-, valhnetu- og chilipiparrækt.

1024x1024-2

Myndband og heimild frá SF Gate:


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images