Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ótrúlegt!

$
0
0

Ingólfur Hermannsson skrifar:

ingolfur

Ég var þess heiðurs aðnjótandi að koma að skipulagningu á borgarafundi um framtíð lýðræðis sem haldinn var um síðustu helgi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.

Rétt áður en fundurinn hófst, þegar mér var litið yfir sviðið þar sem fjöldi manns var að leggja lokahönd á undirbúninginn, þá skaut orðinu ‘ótrúlegt’ upp í kollinn á mér.

Það var ótrúlegt hvað margir unnu að undirbúningi þessa viðburðar.

Það var ótrúlegt að svo að segja allir sem leitað var til voru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum, einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir.

Starfsfólk Borgarleikhússins er auðvitað alveg ótrúlegt á venjulegu þriðjudagskvöldi, en það var sérstaklega ótrúlegt hvernig þetta frábæra fagfólk bætti á sig verkefnum og lagði sig fram um til að gera fundinn sem glæsilegastan.

Það var líka ótrúlega frábært að fá stuðning frá fólki út í bæ þannig að við gætum borgað það sem ekki fékkst frítt.

_D4A3792

Svo þegar fólkið tók að týnast inn í salinn þá fannst mér það ótrúlegt hvað margir voru tilbúnir að eyða sunnudegi í setjast niður og ræða við samborgara sína um þróun lýðræðisins á Íslandi. Þarna var fólk úr öllum áttum, Gunna og Jón, fræðimenn og fyrrverandi forseti. Allir jafnir að ræða um helstu þrautir sem þyrfti að leysa og tækifæri sem væru fyrir hendi og allir ótrúlega sammála um grundvallaratriði lýðræðis, hvort sem það voru íslenskir kennara​r​ eða grískir aktívistar. Já, ég átti eftir að nefna erlendu gestina.

Á fundinn komu yfir 20 erlendir gestir frá 9 löndum, sem flugu sérstaklega til landsins til að taka þátt í fundinum og ráðstefnu sem Háskóli Íslands hélt í tengslum við hann. Meðal gesta voru prófessorar úr virtustu háskólum heimsins, og þótt það sé ótrúlegt út af fyrir sig, þá var enn ótrúlegra að heyra þ​á tala um nýju stjórnarskrána okkar. Þarna voru komnir í heimsókn til okkar þekktir fræðimenn sem hafa helgað starfsferil sinn þróun lýðræðis, að segja okkur hvað nýja stjórnarskráin okkar sé einstök og í raun módel sem þjóðir heims geta haft að leiðarljósi. Þeir voru komnir til Íslands til þess að læra af okkur.

Þegar ég sat þarna og hlustaði á þessa erlendu gesti að þá fór mér eiginlega að hætta að þykja þetta allt svo ótrúlegt.

Í rauninni var það miklu ótrúlegra að íslenskir pólitíkusar hafa fram að þessu komist upp með að ​stinga nýju stjórnarskránni okkar undir stól, láta eins og engin þjóðaratkvæðagreiðsla hafi farið fram og engin stjórnarskrá orðið til í kjölfar hrunsins.

Hins vegar ekkert ótrúlegt að stjórnmálaelíta landsins skuli mótfallin breytingum. Það var fyrirsjáanlegt. Nýja stjórnarskráin var samin af almennum borgurum og færir almenningi aukin völd á kostnað flokkanna.

Það er kominn tími til að við tökum málin í eigin hendur. Krefjumst þess, hvar í flokki sem við erum stödd, að stjórnarskrármálið verði efst á dagskrá eftir næstu þingkosningar. Komum á lýðræðisumbótum, lögfestum nýja stjórnarskrá fólksins​!

Hér má sjá og heyra erindi Lawrence Lessig prófessor í lögfræði við Harvard-háskóla sem hann flutti í Borgarleikhúsinu.

Og hér er fyrirlestur Helene Landemore, prófessor í stjórnmálafræði við Yale-háskóla við sama tækifæri.

Höfundur er stjórnarmaður í Stjórnarskrárfélaginu. Ljósmyndir frá borgarfundinum eru eftir Pétur Fjeldsted.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images