Skúli Gunnar Sigfússon eigandi Subway á Íslandi skrifaði eftirfarandi á Facbook og gaf Kvennablaðinu leyfi fyrir birtingu hér:
Stundum erum við Íslendingar staðráðnir í að vera sjálfum okkur verstir. Á þessum myndum, sem ég tók í vikunni í Leifsstöð, er ríkisapparatið Fríhöfnin, að benda ferðamönnum á að kaupa vínföng í Fríhöfninni, því að þá borgi þeir minna í opinber gjöld. Skilaboðin eru sem sagt: Snúðu við frá færibandinu kjáninn þinn, og verslaðu hjá okkur áður en þú ferð inn í landið svo að eigendur okkar, íslenskir skattgreiðendur, fái minna í kassann.
Ég skil ekki hvatann á bak við þetta; ferðamenn fara flestir á hótelherbergi og á veitingastaði. Er ekki betra að þeir eigi viðskipti við veitingamenn á Íslandi frekar en að þjóra vínflöskur úr Fríhöfninni uppi á herbergi eða úti í tjaldi? Nú eða bara að þeir kaupi sitt brennivín í ÁTVR eins og við hin?
Svo finnst mér merkileg alhæfingin í þessum auglýsingum ríkisfyrirtækisins að Íslendingarnir séu ekki sjáanlegir við færiböndin, því að þeir séu allir í Fríhöfninni að kaupa sér brennivín! Við erum sem sagt svo miklar byttur að við flykkjumst öll þangað til að taka tollinn. Líklegast fara mjög margir Íslendingar í Fríhöfnina en ekki allir.
Ég versla t.d. aldrei við Fríhöfnina því að mér finnst hún fáránlegt apparat enda er ríkið þar í bullandi samkeppni við verslunarmenn í landinu með því að veita sjálfu sér 100% afslátt af virðisaukaskatti og innflutningsgjöldum.
Hvaða endemis bull er það?
Að síðustu þá hélt ég að áfengisauglýsingar væru ólöglegar á Íslandi. Í þessum þremur auglýsingum, sem eru á hverju einasta færibandi í komusal Leifsstöðvar, er fólk hvatt til að fara í Fríhöfnina og kaupa áfengi. Skiptir kannski máli að auglýsingin er á Ensku og halda menn því þá fram að íslenskt ungviði og almenningur skilji þetta ekki?
Hvað er svo Fríhöfnin að eyða peningum í þessar auglýsingar?
Þarna er ríkisapparatið Fríhöfnin að greiða ríkisapparatinu Isavia fyrir fjölmargar ólöglegar auglýsingar á öllum færiböndum í komusal og er í raun og veru að taka auglýsingapláss sem einkaaðilar væru annars að borga stórfé fyrir.
Auglýsingar til að fá ferðamenn til að borga minni skatta og gjöld til ríkisins. Þetta kemur svo sem ekki á óvart miðað við það fíaskó sem hefur verið á stjórnun Keflavíkurflugvallar undanfarin misseri.