Hallgrímur Helgason flutti þessa ræðu í tilefni af sextugsafmæli Bubba Morthens
Maðurinn sem fjall – ræða fyrir Bubba sextugan
Bubbi Morthens
Nafnið hljómar eins og eitt af fjöllum Íslands
Búlandstindur Bolafjall Baula Bubbi
Og eins og títt er með fjöll
kom hann fram með látum
fyrsta lagið hljómaði eins og þjóðsöngur
ef ég drukkna drukkna í nótt
setningin sem legið hefur undir hverju skipsrúmi Íslandssögunnar
var allt í einu komin í útvarpið
Eftir að hafa vakað í þúsund ár
voru fjöllin farin að syngja
Við áttum samt í vandræðum með hann
hann var of stór fyrir lítið land
passaði ekki inn í pönkið
Það var svosem eðlilegt
erfitt að koma fjalli fyrir í skáp
Og fjallið hafði auk þess alltof mikið að segja
til að geta sagt það alveg “rétt”
Þjóðviljinn gaf út aukablað gegn Bubba
kallaði hann Leirgerði
hann var gerður að konu og kenndur við leir
nú kenna hann háskólar tveir
Engu öðru íslensku skáldi hefur verið fagnað með viðlíka hætti
ekkert annað
hefur fengið á sig aukablað
eftir fyrsta ljóð
En það var eins og að mótmæla fjalli
glænýju glóðvolgu fjalli
Og skriðurnar héldu áfram að hristast niður af því
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó
við hlið hans sat Júlía
Þar var komið ljóð í ljóði
skáldið hafði dregið okkur öll uppí risið
og inn í vímuna
inní hausinn á dreng sem í huganum var Rómeó
og var farið að yrkja fyrir okkur þar
Í öðru lagi leið heil mannsævi
á fimm mínútum og tíu sekúndum
og allan tímann lágu bátarnir tómir við kajann
í kinnungunum söng
* * *
Ég man þegar ég svo hitti Bubba fyrst
þá að gefa út mína fyrstu bók
hjá Máli og menningu
og vinir mínir sögðu að aðalpartý vertíðarinnar væri á Þorláksmessu
inni á skrifstofunni hjá Halldóri
ég yrði að mæta
því þarna væru andans jöfrar Íslands
allir samankomnir í einu herbergi
að drekka koníak
Ég fikraði mig feiminn inn
framhjá Silju Aðalsteins og Einari Kára
Þorsteini Gylfa
Sigurði A og Helga Hálfa
og læddi mér í stól útí horni hjá Guðmundi Andra og Palla Vals
Sigurður A var rétt að byrja að segja okkur frá Sýsifossi
þegar inn gekk sjálfur Skógarfoss
og stillti sér upp í miðju herbergis
ofan á skrifborðið hjá Halldóri Guðmundssyni
og fór að segja sögur með fyssandi hljóði
Það var Bubbi Morthens
þrjátíu og fjögurra ára gamall
og nýbúinn að gefa út ævisöguna hjá Máli og menningu
(nánast búinn með ferilinn)
Eins og ég var hann þarna í fyrsta sinn
í musteri andans á Íslandi
en munurinn á okkur sá að hann settist ekki útí horn heldur ofan á sjálft skrifborðið
og byrjaði segja sögur
sögur af landi og sögur af sjó
og sögur af sjálfum sér
Ha ha þegar við vorum á Kaffi Gesti í den
ha ha og ég var með tvöfaldan skammt af hrossadeyfingarlyfi í blóðinu
þá byrjaði staðurinn að sporðreisast maður vá!
Staðurinn byrjaði að sporðreisast
og svo var þessi sögumaður magnaður
að Laugavegur 18 byrjaði líka að sproðreisast
í miðri sögu
skrifstofan hjá Halldóri tók að hallast
ég sá Silju grípa í dyrakarm
og sá hvar Stefán Hörður sveif með sitt permanent í slómó út með bókahillunni
en tókst þó að halda koníakinu láréttu í glasinu
og allt í einu var ég kominn með Helga Hálfa í fangið
allt í einu sat ég með Helga Hálfa í fanginu
en Sigurður A var orðinn Sigurður B og C
og hártoppurinn á Halldóri hafði vingsast svo langt til hægri
að hann átti fullt í fangi með að sópa honum til baka með vísifingri og löngutöng
Þannig var það
Bubbi Morthens hafði sporðreist íslenska skáldabekkinn
með einni góðri sögu
Þessi maður var miklu magnaðri en maður hafði þó haldið
Og það fengum við svo að reyna jól eftir jól
þegar fjallið fór til Múhameðs Mána
þar sem hann sat inni á Litla Hrauni
Það eru í raun aðeins tveir menn sem gætu gert það
sem Bubbi Morthens gerir á hverju ári
að fara og tala við okkar viðkvæmustu og vansælustu menn á sjálfan aðfangadag
og þessir tveir menn eru nú báðir látnir
Jesús Kristur og Múhameð Ali
* * *
Svo liðu árin
jepparnir komu og fóru
og Davíð og Geir og Hrunið
menn og mótmæli
Ég var nýbúinn að berja bílinn hjá Haarde
og var að koma úr spjallþætti í sjónvarpi
þegar síminn hringdi
Bubbi sagðist vilja hitta mig
Við sátum í tvo tíma á Kaffitári
því Bubbi hafði séð það sem enginn vissi
að konan var farin frá mér og allt í tilfinninganna tjóni
“Ég sá það í augunum á þér í sjónvarpinu”
sagði hann eins og spámaður frá Austurlöndum
og hlustaði svo á mig rekja skilnaðarraunir
Hann kunni þá líka að hlusta
eins og besti sálfræðingur
eins og betri en besti sálfræðingur
því hann var sjálfur nýbúinn að yrkja
Ég á engan skjöld
ég á ekkert sverð
ég verð bara einmana þegar þú ferð
* * *
Í dag er staðan sú
að Bubbi er farinn að yrkja sönglaust
og sendir mér nýtt handrit í hverjum mánuði
hverri viku
Maður sest fyrir framan tölvuna klukkan hálf níu að morgni
og byrjar á því að renna yfir Facebook
sér status frá Bubba Morthens
Kæru vinir
lífið er fallegt
logn á vatninu
rósir í garðinum
og ég búinn að sitja við síðan hálf fjögur
að lyfta ljóðum
Djösins kraftur er í karlinum
dáldið óþolandi samt
muldrar maður og lokar síðan Facebook
og ætlar að fara að vinna
áfram í eigin handriti
þegar tölvupóstbjallan hringir
og nýtt handrit frá Bubba Morthens dettur í hólfið
Ertu til í að lesa vinur?
Þau eru erfið þessi fjöll
sem hafa vakað í þúsund ár
En ef þú rýnir inn í bergið
sérðu glitra tár
Bubbi Morthens er einstakur maður
hann spannar allan skalann
Gælir við rósablöð með vinstri
en Gunnar Nelson með hægri
Hann er Egill
hann er Grettir
hann er einstakur maður
hann er maðurinn sem fjall
Og á fjallinu vaxa bæði blóm
og stormar
Ljósmynd Sigtryggur Ari