Félög kvenna á Hallveigarstöðum bjóða til fundar í tilefni af kvenréttindadeginum 19. júní. Þann dag árið 1915 fengu konur á Íslandi, 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis þegar konungur samþykkti nýja stjórnarskrá. Árið 1918 var svo 40 ára aldursákvæði numið úr lögum. Fundurinn verður sunnudaginn 19. júní kl. 15. í samkomusal Hallveigarstaða að Túngötu 14.
„Í ár er fundurinn helgaður forsetakosningum og eru gestir fundarins konur í framboði til embættis forseta Íslands: Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir og Hildur Þórðardóttir,“ segir í tilkynningu Kvenréttindafélags Íslands.
Dagskrá fundar verður sem hér stendur
- Guðrún Þórðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands opnar fund og stýrir
- Dagný Ósk Aradóttir Pind flytur kveðju frá Kvenréttindafélagi Íslands
- Elísabet Jökulsdóttir ávarpar fundinn
- Guðrún Margrét Pálsdóttir ávarpar fundinn
- Halla Tómasdóttir ávarpar fundinn
- Hildur Þórðardóttir ávarpar fundinn
- Jóhanna Pálsdóttir formaður Bandalags kvenna í Reykjavík slítur fundi
Auglýsing