Magnús R. Einarsson, tónlistar- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, hefur lengi átt sér þann draum að koma út úr skápnum sem söngvaskáld – eða eins og hann orðar það svo hógværlega, trúbador. Nú hefur hann látið drauminn rætast og í vinnslu er tíu laga geisladiskur með frumsömdum lögum og textum sem hann syngur sjálfur. Verkefnið er með söfnunarsíðu á Karolina Fund og stefnt er að útgáfu og útgáfutónleikum í september.
En hvað kom til að Magnús ákvað að hrinda þessari draumsýn í framkvæmd?
„Alveg frá því að ég var strákur hefur mér fundist þeir sem semja lög og texta syngja þau og spila sjálfir vera miklu flottari heldur en þeir sem gera bara einhvern hluta af þessu. Að geta gert allt var voðalega heilllandi. Ég gerði þó ekkert í þessu lengi vel. Aðallega vegna þess að ég bar svo mikla virðingu fyrir tungumálinu að ég vildi ekki vera að klæmast á því.“
Í janúar fyrir einu og hálfu ári brustu varnirnar og Magnús ákvað að láta reyna á það hvort hann hefði það sem til þarf til að semja texta. Hann fór í tveggja vikna frí, slökkti á símanum, dró fyrir glugga og sat við tölvuna með gítarinn í fanginu frá morgni til kvölds við að berja saman texta og lög, eins og hann orðar það.
„Á þessum tveimur vikum samdi ég sjö lög og texta, einn átti ég fyrir og síðan hafa tveir bæst við. Ég hafði áður samið töluvert af músík þannig að ég ákvað að byrja á textunum, enda var það fjallið sem ég þurfti að klífa. Ég hins vegar komst að því að yfirleitt kviknar hvort tveggja í senn og þetta gekk betur en ég átti von á fyrirfram. Upphafstónar textanna voru utan úr himingeimnum, hugmyndin var að hafa himinhnettina sem útgangspunkt, en yrkisefnin voru nú bara einhver fantasía inni í hausnum á mér. Það eru bara til tvær sortir af textum sagði Megas einu sinni; brunaljóðið og heimsósómavísan og þær eru þarna báðar þessar sortir hjá mér. Ég er með tvö, þrjú ástarljóð, eitt eða tvö saknaðarljóð og svo er ég með tvær heimsósómavísur, aðra um skrítin loforð ríkisstjórnarinnar og hin um skipulögð morð Bandaríkjamanna á óbreyttum borgurum í Asíu. Þetta eru ekki ævisögulegir textar, ég er ekki að segja sögur úr eigin lífi, en þeir fjalla um tilfinningar sem ég kannast við, hef upplifað, heyrt af, lesið eða séð á lífsleiðinni. Séu hér á ferðinni einhverjar játningar og opinberanir er það mjög óbeint, alveg óvart og tilfallandi.“
Magnús segir að þótt fjallið hafi verið hátt að klífa standi þó upp úr hversu skemmtilegt honum hafi þótt þetta ferli.
„Þetta var alveg ferlega gaman og ég naut þess mjög, þetta er eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef gert. Að loknum þessum tveimur vikum setti ég þetta bara í skúffuna í bili, en draumurinn var auðvitað að fara með þetta alla leið og koma þessu frá mér svo ég væri laus við það. Manni hættir til að festast í svona verkefnum og vera endalaust að fægja og fága og verða eins og maðurinn sem alltaf var að slípa demantinn sinn og endaði með fullar hendur af salla.“
Magnús segist hafa ákveðið að hafa þetta einfalt og tiltölulega hrátt, fólk skuli ekki búast við flóknum útsetningum og strengjasveitum.
„Ég er svo heppinn að hafa undanfarin ár verið að spila með frábærum músíkköntum og það var auðsótt mál að fá þá Tómas M. Tómasson bassaleikara og Karl Pétur Smith trommuleikara til að spila þetta með mér. Andrea Gylfadóttir ætlar svo að hjálpa mér með söng og raddir í nokkrum lögum og Ásgeir Óskarsson leggur gjörva hönd á músíkina með ásláttarfærni sinni.“
Spurður hvort sú staðreynd að hann verður 64 ára í haust hafi ýtt honum fram af brúninni með að láta þennan draum rætast harðneitar Magnús því.
„Alls ekki, það er bara tilviljun, en vissulega skemmtileg tilviljun. Það er hins vegar ekkert oft sem kallar á mínum aldri hafa tækifæri til að gera svona hluti, en þessa músík sem ég sendi frá mér núna samdi ég fyrst og fremst sjálfum mér til ánægju, auk þess sem það var ögrun að sjá hvort ég gæti þetta yfirhöfuð. Þetta er svona álíka verkefni og þegar einhver kall tekur upp á því að hjóla einn í kringum landið til að sjá hvort hann komist á endastöð. Nú er ég farinn að sjá hilla undir endamarkið og ég vona innilega að þetta ferðalag verði þeim sem hlusta á afraksturinn líka til ánægju.“
Við bendum þeim sem vilja styrkja verkefni Magnúsar að heimsækja síðu hans á Karolina Fund.