Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Til hamingju Ísland, eða ekki, frá mér

$
0
0

Við kusum okkur forseta sem stendur ekki fyrir neitt sérstakt annað en kyrrstöðu.
Sér viðskiptatækifæri í Brexit-kosningunum þó stór hluti Evrópubúa sé skelfingu lostinn.
Og þá fer fólk að þvaðra um hvað börnin hans passi vel á Bessastaði eins og um púðluhunda sé að ræða.

Ég sverða – ég er farin að halda að vitsmunum okkar sé hreinlega ekki viðbjargandi.

Það voru tveir frambjóðendur sem gerðu málefni barna og unglinga að umtalsefni í þessum forsetakosningum og hann var ekki einn af þeim. Mér verður hreinlega flökurt af þessari marklausu velgju um börnin hans.

Ég ætla að veðja að þessi nýji forseti muni undirrita TISA-samningana án þess að hika. Vona að ég hafi rangt fyrir mér en grunar ekki.

Þvílík vonbrigði að íhaldsemin hafi ráðið för með mann sem hafði ekkert að segja og hafði mikið forskot allan tímann.

Ég leyni ekki þeirri skoðun minni og á auðveldara með að koma út úr skápnum með hana nú en nokkru sinni áður og ætla svo sannarlega ekki í ánægjukórinn um að Davíð hafi þó ekki náð kjöri eins og það hefði einhvern tíma gerst sjénsinn-Bensinn og það var augljóst fyrir löngu.

Þessi maður mun sitja þarna í 12 ár og standa fyrir engum breytingum.

Við erum kannski ekki hálfvitar upp til hópa en bara ekkert framúrskarandi greind.

Það veldur mér vonbrigðum auk þess sem ég óttast íhaldsemi og innihaldsleysi og undarlegs afstöðuleysis nýs forseta sem og furðulegra ummæla sem frá honum hafa komið.

Til hamingju Ísland, eða ekki, frá mér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283