Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fleiri hafa greinst með HIV á árinu en allt síðasta ár

$
0
0

Fleiri hafa greinst með HIV-sýkingu það sem af er þessu ári en á öllu árinu 2015. Þetta kemur fram í farsóttafréttum sóttvarnarlæknis landlæknisembættisins sem komu út í gær og má lesa hér.

Lesið einnig: Mín reynsla af HIV

Í skýrslunni segir meðal annars:

„Það sem af er árinu 2016 hafa 16 einstaklingar greinst með HIV-sýkingu, þar af þrír með alnæmi.Áhættuþættir tengdust kynlífi gagnkynhneigðra í sex tilvikum en kynlífi samkynhneigðra í þremur tilvikum. Fimm karlmenn og tvær konur höfðu sögu um fíkniefnaneyslu í æð.

Lesið viðtal við Nönnu Gotfredsen hér:  þar segir hún meðal annars frá öruggum neyslurýmum fyrir fíkla sem rekin eru í Kaupmannahöfn og víðar. Þar er hægt er að sprauta sig og neyta vímuefna á öruggan hátt.

Meðalaldur þeirra sem greinst hafa á árinu er nokkuð hár, eða 44 ár (24–50 ára) og greinir skýrslan einnig frá því að ástæður sýkinga séu mismunandi.

„Óvenju margir með áður óþekkt smit greindust með alnæmi, lokastig sjúkdómsins, sem bendir til þess að viðkomandi hafi gengið með óþekkt smit í talsverðan tíma.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images