„Við upplifum það oft að mannréttindi náist ekki fram nema í gegn um dómstóla,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins, við Fréttablaðið sem kom út í morgun. Til umfjöllunar er dómur Hæstaréttar í máli sem Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) rak fyrir konu gegn Reykjavíkurborg en henni hafði verið neitað um sérstakar húsaleigubætur vegna þess að hún leigir húsnæði af hússjóði ÖBÍ en ekki hjá Félagsbústöðum eða á almennum markaði.
Niðurstaðan er að borgin má ekki neita leigjendum Brynju – hússjóðs ÖBÍ um sérstakar húsaleigubætur. „Svo vonum við auðvitað að það verði fordæmisgefandi fyrir fleiri í sömu stöðu,“ segir Ellen við Fréttablaðið en í fyrra leigðu um 460 einstaklingar hjá hússjóði ÖBÍ.
ÖBÍ hefur barist fyrir því í sjö ár að reglum borgarinnar um bæturnar verði breytt. Innanríkisráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu árið 2010 að reglurnar væru til þess fallnar að mismuna fólki og beindi þeim tilmælum til Reykjavíkurborgar að breyta reglunum.
Formaður Öryrkjabandalagsins reyndi áður en dómstólaleiðin var farin ítrekað að ræða málin og leita lausna við fulltrúa borgarinnar í tíð Jóns Gnarr og sátu þann fund bæði Dagur B. Eggertsson og Björn S. Blöndal. Ekki skilaði sá fundur árangri og fór málið þá fyrir héraðsdóm.
Eftir úrskurð héraðsdóms fór formaður ÖBÍ afur og reyndi að fá lausn á fundi nýs borgarstjóra Dags B. Eggertssonar en allt kom fyrir ekki og fór því málið fyrir Hæstarétt með ofangreindum úrskurði.






