Að gefnu tilefni (langt, en mikilvægt).
Kæru vinir,
í gærkvöldi fékk ég (og þið öll) ábendingu frá henni Laugu vinkonu minni um að kona að nafni Jóna hafði ritað eftirfarandi athugasemd við frétt á DV: „Vona að Sema Erla Serðir farist í næstu hryðjuverkaárás skítmenna af hennar tagi (múslimaskítmenna).“

Eðlilega brugðust allir harkalega við þessari hræðilegu athugasemd, enda eru fordómar, öfgar og hatur eitt stærsta vandamál samtímans, sem og hatursáróður á netinu, og þessi athugasemd er með þeim ógeðfelldustu sem við höfum séð í þónokkurn tíma. Vegna þess að flest okkar láta ekki slíkt netníð og persónuárásir í garð fólks viðgangast í samfélaginu okkar fordæmdu margir ummælin. Aftur, eðlilega.
Ég fylgdist með umræðunni í alla nótt og í allan dag víða á netinu og í dag hef ég fengið mikið af skilaboðum frá fólki sem þekkir Jónu og tengist henni, sem og Jónu sjálfri, sem þvertekur fyrir að hún hafi skrifað þessi ummæli.
Hún Lauga, sem og móðir mín, hún Edda, og jafnvel fleiri, hafa einnig fengið mikið af skilaboðum í dag og hafa þurft að sitja undir alls konar ásökunum, einungis fyrir það að bregðast við því sem var beint fyrir framan nefið á þeim, en ég vil þakka Laugu fyrir að hafa brugðist við þessum hatursáróðri, sem og öllum hinum. Þið brugðust öll rétt við aðstæðunum sem þarna komu upp og miðað við þær staðreyndir sem liggja fyrir.
En, vegna þess hvernig málið hefur þróast vil ég koma nokkrum hlutum á framfæri, því ég hef einfaldlega ekki orku eða getu í að bregðast við hverju og einu sem hefur verið sagt og skrifað síðasta sólarhringinn.
Í fyrsta lagi, móðir mín hefur þurft að horfa upp á hatursáróður og persónuníð á netinu í garð dóttur sinnar í ansi langan tíma núna, einungis vegna þess að ég tek þátt í opinberri samfélagsumræðu. Það að hún hafi enn ekki brugðist harkalegra við en hún gerði td. í þessu tilfelli, sem og öðrum tilfellum, segir allt sem segja þarf um hana.
Réttlæti, góðmennska, umburðalyndi og samkennd eru orð sem lýsa henni best. Fæst okkar geta gert sér í hugarlund um hvað fer í gegnum huga hennar og hjarta þegar það er skrifað á opinberan vettvang að barnið hennar eigi að drepast í hryðjuverkaárás. Ég bið ykkur því um að vera ekki að senda henni skilaboð með ásökunum, frekar ættu þið að senda henni ást og kærleika því ég gæti ekki staðið í þessari mikilvægu baráttu án hennar!
Í örðu lagi, þá er þetta mál í einu orði sagt glatað! Fyrir það fyrsta skulum við gera okkur grein fyrir því að í þessu máli er amk. eitt fórnarlamb, kannski tvö. Áður en haldið er áfram skulum við minna okkur á ummælin og að hverjum þau beinast og afhverju. Það að einhverjum hafi fundist í lagi að skrifa slíkan viðbjóð á internetið er vandamál sem er stórhættulegt ef ekki er brugðist við því, eins og var gert í þessu tilfelli.
Það eina sem er 100% ljóst á þessum tímapunkti er að þessi athugasemd er sett fram undir þessu nafni og því er mjög eðlilegt að ganga út frá því að það hafi verið sá einstaklingur sem skrifaði færsluna, enda eigum við ekki að venjast öðru. Þegar þeir sem skrifa hatursáróður á netið hafa verið látnir svara fyrir það sem þeir hafa skrifað þá kemur alltaf sú afsökun að einhver annar hafi farið inn á aðganginn þeirra og skrifað þetta. Einn kenndi td. börnunum sínum um. Þeir halda þó yfirleitt áfram að hamast á lyklaborðinu og spúa hatri og öfgum og þess vegna er líka mjög eðlilegt að fólk sé ekki tilbúið að kaupa þá útskýringu í fljótu bragði.
Til þess að gæta sanngirni er mikilvægt að það komi fram að ef það er hins vegar raunin í þessu tilfelli að einhver annar en Jóna hafi skrifað þetta í tölvu sem hún hefur loggað sig inn á, þá er um hræðilegt netníð að ræða og fórnarlömbin orðin tvö í þessu máli. Ég trúi ekki öðru en að hún bregðist þá við því og vonandi tekst henni þá að finna út úr því hver setti þetta fram í hennar nafni með því að rifja upp hvar hún hefur verið að nota tölvu síðustu daga. Sjálf logga ég mig td. bara inn á Facebook heima og í vinnunni þar sem eru harðlæstar tölvur, af augljósum ástæðum.
Í þriðja lagi, þá vona ég að þetta mál leysist fljótlega, allra vegna! Ljóst er að sama hvað þá er hér augljóslega um lögreglumál að ræða og ég mun hafa samband við lögregluna á morgun og ég vona að hún Jóna geri þá hið sama. Það verður vonandi til þess að niðurstaða komist fljótt í málið. Ef sá sem skrifaði þessa ljótu athugasemd er að lesa þetta og vill gera okkur öllum auðveldara fyrir má hann hringja í mig og við leysum að sjálfsögðu úr þessu á heilbrigðan hátt!
Að lokum,
við megum aldrei hætta að berjast fyrir mannréttindum, réttlæti, umburðalyndi og kærleika fyrir allt fólk! Við verðum að halda áfram að berjast gegn mismunun, fordómum, ótta og hatri. Slík sundrungaröfl fá aldrei að sigra, en það er einungis í sameiningu sem okkur mun takast að sigra!
Baráttukveðjur,
S.






