Það er víst engin þöggun um nauðgunarmenninguna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Samt má ekki tala um vandann án þess að sjálfskipaðir verndarar hagsmuna Vestmannaeyja birtist og nöldri yfir framsetningu, húmorsleysi eða skrumi í umræðunni þar til að úr er orðið allsherjar menningastríð milli landsbyggðar og höfuðborgar.
Hagsmunaaðilarnir hossa sér á þjáningum brotaþola. Ábúðafullir birtast þeir sem verndarar, beita þolendum fyrir sig og nota þá sem jarðsprengjufóður eigin sérhagsmuna.
Það er samt engin þöggun í gangi sko, bara alls ekki!
Þrátt fyrir að Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Vestmannaeyja sé staðráðin í að ekki falli svartur blettur á peningaplokkið Þjóðhátíð og neiti að veita tölfræðiupplýsingar um kynferðisbrot fyrr en eftir að þjóðhátíð er lokið – og allir eru timbraðir á heimleið – þá er það sko engin þöggun.
Þrátt fyrir að Margrét Erla Maack, þáttastjórnandi á Rás 2, hafi þurft að biðjast afsökunar á kaldhæðinni pillu til lögreglustýrunnar – þá er sko engin þöggun í gangi.
Þrátt fyrir að Stígamót séu ekki velkomin á hátíðina og hafi raunar ekki verið síðan 2011 eftir að samtökin gagnrýndu aðgerðarleysi skipuleggjenda vegna kynferðisbrota. Þá er sko engin þöggun í gangi gagnvart nauðgunarkúltúrnum á þjóðhátíð.
Alls ekki sko, ef eitthvað er – þá er bara þöggun um allt stuðliðið sem mætir og er ekki nauðgað!
Þrátt fyrir að kynferðisbrot séu ‘meintustu’ glæpir samfélagsins – þá er sko engin þöggun í gangi.
Þrátt fyrir að Ríkisútvarpið beygi sig og bukti í tilraunum til að sætta skipuleggjendur Þjóðhátíðar sem setja stundargróða framar öryggi gesta og setji ímynd ofar úrlausn; þá er sko engin þöggun í gangi. Margrét Erla Maack þurfti bara að biðjast afsökunar vegna framsetningu ekki innihalds! Það sjá auðvitað allir sem fylgst hafa með skipuleggjendum Þjóðhátíðar undanfarin ár.
Hér fer augljóslega ekki fólk sem vill þegja kynferðisbrot í hel með því að beita fyrir sig smásmuguhætti né kurteisiskröfu sem kúgunartæki.
Engin þöggun! Í Vestmannaeyjum er engin þöggun! Hættið að tala um þessa þöggun! Það er sko engin fjandans þöggun…



