Í nýlegum pistli fór fjármálaráðherra yfir stöðu almannatrygginga og sagði meðal annars:
„Ríkið hefur aldrei varið meiru til almannatryggingakerfisins en gert er á þessu ári. Það á við hvort sem litið er til hlutfalls af landsframleiðslu eða sem hlutfalls af frumgjöldum. Nú fara um 27 milljarðar til almannatrygginga á ári umfram það sem átti við þegar ríkisstjórnin tók við völdum.“
Hér tekur fjármálaráðherra almannatryggingar út fyrir sviga málaflokksins „Almannatryggingar og velferðarmál“ eins og hann birtist í stöðluðu yfirliti fjárlagafrumvarpa undanfarinna ára (undir Fjárreiður > Töfluyfirlit > Skipting útgjalda eftir málaflokkum). Ef upphæðir þess málaflokks eru skoðaðar aftur í tímann, umreiknaðar út frá vísitölu neysluverðs þá sést að fjárlagafrumvarp 2016 gerir ráð fyrir rúmum 161 milljarði í málaflokkinn en árið 2008 var sá málaflokkur í tæpum 182,5 milljörðum. 2014 var sá málaflokkur í rúmum 172,5 milljörðum. Það vantar því þó nokkuð upp á.
Ef tekið er tillit til vergrar landsframleiðslu þá líta tölurnar enn verr út en hlutfall málaflokksins fyrir árið 2016 er bara um 6,8% á meðan það var um 8,4% árin 2008 og 2014. Til þess að ná sama hlutfalli v. landsframleiðslu þyrfti að bæta í málaflokkinn um 40 milljörðum.
Almannatryggingar eru um tveir þriðju hluti af málaflokknum „Almannatryggingar og velferðarmál“. Það má vel vera að hluti almannatrygginga hafi vaxið það mikið innan málaflokksins á undanförnum árum að það sem fjármálaráðherra segir passi við tölurnar úr fjárlagafrumvarpinu. Það myndi hins vegar þýða að hlutur velferðarmála hafi minnkað rosalega mikið. Ef það er málið þá þætti mér vænt um að fá útskýringar á því. Ég hef hins vegar enga ástæðu til þess að efast um að það hlutfall hafi breyst mjög mikið sem þýðir þá að fjármálaráðherra er í einhverri reikningsleikfimi til þess að láta sig líta vel út.





