„Ráðherra ferðamála virðist ekki nenna að reka af sér slyðruorðið og tryggja að sveitarfélög fái hlutdeild í tekjum af ferðafólki – því það snúist einungis um milljarð á ári!“ skrifar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á Facebook í dag. Þar gagnrýnir hann Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðarráðherra fyrir verkleysi þegar kemur að tekjuöflun sveitarfélaga vegna ferðamannastraums.
„Já, ráðherrann kallar þann milljarð sem sveitarfélögin hafa verið að kalla eftir til að mæta kostnaði vegna ferðamanna „bara baunir“. Er þarna loks komin ástæðan fyrir algeru aðgerða- og áhugaleysi ráðherra við að koma til móts við þá eðlilegu kröfu að gistináttagjald renni til sveitarfélaga? Það taki því ekki.“
Borgarstjóri hlekkir í grein á vef sjónvarpstöðvarinnar Hringbraut þar sem haft er eftir Ragnheiði Elínu að tekjur vegna gistináttagjald á ferðamenn séu „baunir“. „Tekjur af gistináttagjaldi eru nú 250 milljónir króna á ári,“ segir í umfjöllun Hringbrautar. „Það eru baunir,“ sagði Ragnheiður Elín. Ef gjaldið er fjórfaldað, úr hundrað krónum í 400. „Milljarður er líka baunir í samhengi við allar þær tekjur sem fást af ferðafólki,“ segir ráðherra og bætir við að hækkun virðisaukaskatts úr sjö prósentum í ellefu sé betur til þess fallin að auka tekjur ríkissjóðs.

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra var viðmælandi á Hringbraut nýlega. Mikið er gert úr Ragnheiði á þessum síðustu og verstu tímum.
Dagur vill meina að milljarð megi ná sé rétt staðið að málum. „Fyrir milljarð á ári mætti engu að síður gera gangskör í uppbyggingu innviða, einsog salerna, umhirðu og viðhaldi, einsog hreinsun og malbiksframkvæmdir, þar sem þörfin er brýn víða um land vegna aukins álags og straums ferðamanna. Það er ekki undarlegt að farið sé að þykkna í sveitarstjórnarfólki. Og ráðherra gerir illt verra og hælist um og segir allar kistur séu fullar af gulli hjá ríkinu. Það er í það minnsta ljóst að Ragnheiður Elín ætlar að klára ráðherratíð sína án þess að gera neitt í þessu. Afrakstur heils kjörtímabils: Innviðina vantar víða, aðgerðarleysið er algert og stuðningur við sveitarfélög í þessum mikilvægu verkefnum enginn.“
Mynd: Ferðamálastofa





