„Maður sem krafðist 200 milljóna Bandaríkjadala ábyrgðar ríkissjóðs Íslands á viðskiptaævintýrum sínum í heilbrigðisbransanum telur nú að óljósar hugmyndir um nýtt sjúkrahús í Mosfellsbæ ógni lífi og limum Íslendinga,“ segir á vefritinu Andríki þar sem skotið er á Kára Stefánsson, lækni og erfðafræðing, vegna gagnrýni Kára á boðaða uppbyggingu einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ.
Í greininni segir Kári að:
„Útlendingaspítalinn myndi því rústa því sem eftir er af íslensku heilbrigðiskerfi og gera endurreisn þess margfalt erfiðari en ella. Lífi og limum landsmanna steðjar því hætta af Brugada og hugmyndum hans um það hvernig hann geti gert sér fé úr heilbrigðisþjónustu á Íslandi.“
Þessi ummæli Kára verða Andríkismönnum innblástur og að sjálfsögðu tilefni til gagnrýni:
„Kári gengur jafnvel svo langt að eggja heilbrigðisráðherra til að afnema atvinnufrelsi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annars starfsfólks í heilbrigðisþjónustu og kæfa þessar hugmyndir í fæðingu,“ skrifa Andríkismenn og gæta þess að minnast ekki orði á þátt sjálfskipaðra frjálshyggjumanna í málinu.
Árið 2002 lagði fjármálaráðherra Geir H. Haarde fram frumvarp um ríkisábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starfssemi Íslenskrar erfðagreiningar. Stjórnarfrumvarpið var lagt fram af ráðherra þáverandi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Ríkisábyrgðin var umdeild en samþykkt af þingmönnum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Meðal þeirra sem greiddu atkvæði með gjörningnum var Davíð Oddsson.
Andríkismenn nefna þó að Sigríður Á. Andersen, þingkona flokksins lagði fram frumvarp um að afnema skyldi ríkisábyrgðina. Það frumvarp er frá 2015 og fékk að deyja drottni sínum þrátt fyrir að flokkar einkaframtaksins væru við völd. Þess má til gamans geta að eiginmaður Sigríðar, Glúmur Björnsson, er í ritstjórn Andríkis og var Sigríður ein af stofnendum vefsins og sat um árabil í stjórn rekstarfélagsins.
Þá er að sjálfsögðu skautað framhjá því að eðlismunur er á uppbyggingu sjúkrahúss fyrir útlendinga og ríka og svo því að ríkið komi að uppbyggingu rannsóknarfyrirtækja.
Sá óþægilegi en áberandi eðlismunur fer að sjálfsögðu vandlega framhjá meintum frjálshyggjumönnum.






