Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra er ósátt við ómálefnalegheit Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, eftir að Dagur gagnrýndi hana fyrir verkleysi í morgun. Ráðherra segir borgarstjóra ómálefnalegan um leið og framlag hennar til bættrar umræðu er að kalla Dag „önugan.“
Sjá einnig: Borgarstjóri furðar sig á „baunum“ Ragnheiðar Elínar
„Það hefur áður komið fram að ég og borgarstjóri erum ekki sammála um að gistináttagjaldið sé sá gjaldstofn sem færa eigi yfir til sveitarfélaganna til þess að tryggja þeim meiri hlutdeild í tekjum af ferðamönnum sem hingað til landsins koma,“ skrifar Ragnheiður á Facebook fyrr í dag.
„Það er vegna þess í fyrsta lagi að það myndi skila sér með mjög ójöfnum hætti til sveitarfélaganna um landið og hvergi í samhengi við þann kostnað sem sveitarfélögin – sérstaklega þau fámennustu úti á landi – hafa af þjónustu og innviðauppbyggingu vegna ferðaþjónustunnar. Í öðru lagi gefur gistináttagjaldið ekkert sérstaklega vel af sér, ef svo mætti til orða komast, sérstaklega þegar haft er í huga hversu mikið ómak er af innheimtu þess, fjöla innheimtuaðila, margar undanþágur og litlar heimtur. Þetta ræddi ég allt í viðtalinu sem Dagur vísar til.“
Hún segir borgarstjóra og ráðherra þó sammála um að finna þurfi leiðir til þess að auka hlutdeild sveitarfélaga í tekjum af ferðaþjónustu.
„Það höfum við rætt og þetta veit hann mæta vel. Hann veit líka mæta vel að þetta er eitt af markmiðum Vegvísis í ferðaþjónustu og hann veit líka að vinna við þetta er hafin á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála. Þar er að auki verið að skoða hvaða tekjur sveitarfélögin hafa nú þegar af ferðaþjónustunni. Við fyrstu sýn virðist manni þó að stærsta sveitarfélagið í landinu ætti að vera í langbestu stöðunni – fasteignagjöld af hótelum sem rísa víða um borgina, útsvar af launum alls þess fjölda starfa sem orðið hafa til í ferðaþjónustunni o.s.frv. – allt hlýtur þetta að telja og vera að minnsta kosti eitthvað upp í kostnaðinn við þau „brýnu“ verkefni sem borgin er að ráðast í um þessar mundir eins og þrengingu Grensásvegar.“
Lesendur ættu ekki að velkjast í vafa um að ráðherra vitnar hér í kaldhæðnum tón til þrengingar Grensásvegar sem brýns máls samhliða því að kalla eins og áður segir gagnrýnanda sinn önugan og ómálefnalegan.





