Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Neytendasamtökin bjóða fram aðstoð gegn gylliboðum DV

$
0
0

„Neytendasamtökin hafa undanfarið fengið nokkurn fjölda erinda er varða áskriftarleiðir DV og símtöl þau sem félagsmenn hafa fengið, þar sem þeim er boðin áskrift,“ segir í frétt á vef Neytendasamtakanna í dag. Samtökin bjóða milligöngu í úrlausn mála þar sem fólk telur á sig gengið.

„Áskriftarleiðir sem nefndar hafa verið eru margvíslegar en svo virðist sem félagsmenn séu í einhverjum tilfellum ósáttir þar sem þeir telja þær upplýsingar sem fram hafi komið í umræddum símtölum ekki hafa staðist þegar á reyndi.“

Auglýsing

Jóhannes Gunnarsson, fráfarandi formaður Neytendasamtakanna, deilir fréttinni á Facebook og vitnar í.

 

Hjá Neytendasamtökunum fengust þær upplýsingar að málin væru fjölbreytt og að nokkrir tugir ábendinga hefðu borist. Neytendasamtökin taka upp mál fyrir félagsmenn sína og hafa nokkrir reikningar þegar verið felldir niður eftir að hlustað var á hljóðupptökur á samtölum sölumanna DV við umbjóðendur Neytendasamtakanna.

Auglýsing

Umkvartanir fólks eru fjölbreyttar þegar kemur að samskiptum við áskriftadeild DV. Öll snúast málin um loforð sem ekki eru uppfyllt. Dæmi um slíkt eru loforð um tölvu í skiptum fyrir áskrift – sem er svo aldrei afhent. Annað dæmi er loforð um þriggja mánaðar áskrift án skuldbindingar og án sjálfvirkrar endurnýjunar. Þriðja dæmið er svo loforð um mánuð í frírri áskrift, þrjá mánuði á niðursettu verði og að lokum engan binditíma. Þegar á reynir tekur hins vegar langur binditími við.

„Neytendasamtökin taka að sér milligöngu fyrir félagsmenn sína í málum sem þessum og hafa þegar verið í sambandi við DV vegna málsins. Hvetja samtökin þá félagsmenn sem lent hafa í vandræðum vegna viðskipta við DV að hafa samband við skrifstofu Neytendasamtakanna. Einnig geta þeir sem ekki eru félagsmenn gengið í samtökin, vilji þeir að samtökin taki að sér milligöngu vegna málsins.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images