Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kvennablaðið eini vefmiðillinn þar sem konur eru í meirihluta þeirra sem fjallað er um

$
0
0

Vefurinn Greynir.is er málgreinir fyrir íslensku og er höfundur hans Vilhjálmur Þorsteinsson. Vilhjálmur greinir frá því á Facebook í dag að Kvennablaðið kemur sterkt inn í kynjagreiningu Greynis og að Kvennablaðið sé eini vefmiðillinn þar sem þar sem konur eru í meirihluta þeirra sem fjallað er um með starfsheiti eða titli. Ekki eru allir fjölmiðlar í mælingu hjá Greyni.is.

Kvennablaðið hefur þó aðeins í stuttan tíma verið í greiningu hjá Greyni svo tölfræðileg marktækni mun aukast með tímanum, segir Vilhjálmur. En þetta eru auðvitað góðar fréttir fyrir okkur og góðs vísir.

Um vefinn segir meðal annars á heimasíðu:

Greynir les nýjustu fréttir og greinar jafnóðum af helstu íslensku fréttavefjunum. Hann umbreytir textanum yfir í setningatré samkvæmt innbyggðum málfræðireglum fyrir íslensku. Trén innihalda og endurspegla setningarhluta, svo sem nafnliði, sagnliði, forsetningarliði, samtengingar og svo framvegis.

Litið er til falla, kynja, persóna og annarra málfræðieiginleika og -reglna til að finna sem réttasta trjágreiningu hverrar setningar. Slík greining getur þó aldrei orðið fullkomin enda er tungumálið afar sveigjanlegt verkfæri.
Þegar setningartrén hafa verið fundin eru eimaðar upp úr þeim upplýsingar á borð við nöfn fólks, titla og starfsheiti, og skilgreiningar á sérnöfnum.

Greynir heldur jafnframt til haga tölfræði um hlutföll kynjanna í umfjöllun hinna ýmsu vefja.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images