Það eru ekki fordómar á Íslandi. Það er engin útlendingaandúð á Íslandi eða andúð á innflytjendum. Það er enginn rasismi, enginn nasismi eða andúð á múslimum til staðar á Íslandi.
Þrátt fyrir að rannsóknir, kannanir, vitnisburðir og endalaus dæmi úr daglegu lífi fólks, opinberri umræðu og fjölmiðlaumfjöllun sýna fram á að slíkt sé svo sannarlega til staðar í íslensku samfélagi finnast ennþá einstaklingar sem halda slíku fram. Þrátt fyrir að stofnaðar hafa verið hreyfingar eins og PEGIDA, Hermenn Óðins, Icelandic Defence League og íslenska þjóðfylkingin finnast ennþá einstaklingar sem halda slíku fram.
Þrátt fyrir að ítrekað sé varað við slíkum hreyfingum, vaxandi þjóðernishyggju og fordómum, vaxandi útlendingaandúð og hatri í garð minnihlutahópa eru ennþá einstaklingar sem halda því fram að þetta sé ekki vandamál í íslensku samfélagi.
Nú er unnið að því að stofna hreyfingu nýnasista á Íslandi. Norræna mótstöðuhreyfingin, sem er starfandi í amk. þremur af Norðurlöndunum, vill m.a. „stöðva stór innflutning á fólki til landsins undir eins og stuðla að brottför meirihluta fólks sem er ekki af Norður-Evrópskum uppruna eins fljótt og mögulegt er“ og í manifesto hreyfingarinnar segir m.a. að „fólkið ætti að vera sent til heimalanda sinna eða annara staða þeim nálægt.“
Það að hreyfing nýnasista hafi nú verið stofnuð á Íslandi eru ekki fréttir fyrir marga. Það var að margra mati einungis tímaspursmál hvenær slíkt myndi gerast. Það vekur hins vegar athygli að enginn virðist vera skráður tengiliður fyrir hreyfinguna hér á landi – sem skýrist mögulega á því hversu ógeðfelldan félagsskap um ræðir og „eðlilega“ vill fólk ekki opinbera tengsl sín við slíkt. Að sama skapi keppast sumar hreyfingar nú við að sverja af sér tengsl við þessa hreyfingu, sem er áhugavert útaf fyrir sig.
EN! Nú segjum við stopp. Nú er komið nóg. Nú er kominn tími til þess að stöðva þessa þróun og nú segjum við hingað og ekki lengra. Þetta gengur ekki lengur. Nú þurfa þeir sem fara með völd og þar af leiðandi ábyrgð að ganga til liðs við okkur hin og segja stopp, að svona viljum við ekki í okkar samfélagi.
Íslensku samfélagi stafar ekki ógn af innflytjendum eða fjölmenningu. Íslensku samfélagi stafar frekar ógn af einstaklingum sem telja sig yfir aðra hafna vegna kynþáttar, uppruna, menningu eða trúar. Íslensku samfélagi stafar ógn af hreyfingum eins og norrænu mótstöðuhreyfingunni.
Við þurfum að segja það hátt og skýrt, aftur og aftur, að við höfnum þjóðernishyggju, hatri, ótta og fordómum og hreyfingum sem ala á slíku í okkar samfélagi.
Við þurfum meiri ást og minna hatur. Við þurfum meiri kærleik, umburðalyndi og samstöðu og minni fordóma, ótta og hatur. Við þurfum ekki hreyfingar eins og norrænu mótstöðuhreyfinguna.
Deildu ef þú ert sammála. Sendum skýr skilaboð.
#ekkiímínunafni #neitakk #neiviðrasisma #fögnumfjölbreytileikanum










