Um 3200 meðlimir Zúista hafa ekki fengið sóknargjöld frá ríkinu greidd í eigin vasa eins og stjórn félagsins lofaði. Mánaðarlega fá Zúistar ríkisstyrk sem ætlaður er trúfélögum en enn hafa félagsmenn ekkert séð af fénu. Ríkisstyrkurinn hefur verið frystur vegna málaferla stofnenda rekstrarfélags Zúista gegn stjórn.
„Trúfélagið Zuism er ólíkt öðrum trúfélögum að því leyti að það endurgreiðir meðlimum sínum árlegan styrk, sem það fær frá ríkinu í nafni félaga sinna, að frádregnum umsýslukostnaði. Lögmaður og endurskoðandi trúfélagsins munu einir sjá um fjármál félagsins. Stjórn þess og aðrir félagar munu aldrei hafa aðgang að fjármunum Zúista,“ segir á vef trúfélagsins.
„Hugmyndirn var í raun alltaf sú að safna saman sóknargjöldunum og greiða þau út í einum skammti, en líklega borgar sig að gera það aðeins einu sinni á ári,“ segir Snærbjörn Guðmundsson, stjórnarmeðlimur félagsins, við Morgunblaðið í dag en blaðið fjallar um stöðu málsins.






