Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögu frá ungmennaráði Breiðholts þess efnis að nemendur verði hluti af stuðningsneti fyrir börn og unglinga af erlendum uppruna, þegar þeir hefja nám í grunnskólum borgarinnar. Þeir verði þannig hluti af móttökuteymi skólanna.
Fulltrúar ungmennaráðsins lögðu tillöguna upphaflega fram í borgarstjórn á vordögum. Bentu ungmennin á að margir nemendur með annað móðurmál en íslensku væru einangraðir alla skólagönguna og að það væri mikilvægt að tengja nýja nemendur inn í frístundastarf í sínu hverfi.
Fræðsludagskráin Vertu næs sem Rauði krossinn stendur fyrir verður að tillögu ungmennaráðsins liður í þeirri fræðslu sem móttökuteymi skóla fær. Farið verður af stað með þetta verkefni í tveimur skólum nú í haust og leitað leiða til að tengja foreldra nýnema við það. Þá verður skipaður starfshópur með fulltrúum ungmennaráða, grunnskóla, frístundamiðstöðva og starfsmanna skóla og frístundasviðs.
Stefnt er að því að verkefnið verði í framtíðinni hluti af móttökuáætlun allra grunnskóla í Reykjavík og að unnin verði handbók með verklagi við móttöku nýrra nemenda af erlendum uppruna sem innleitt verði í skólum og frístundamiðstöðvum.
Velferðarráð og Mannréttindaskrifstofa höfðu áður haft tillögu ungmennaráðs Breiðholts til umsagnar og lýst yfir ánægju með hana enda væri hún í samræmi við forvarnarstefnu og mannréttindastefnu borgarinnar.
Fréttatilkynning frá Reykjavíkurborg.





